Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum

Bólugil í Skagafirði  (c) Róbert Daníel Jónsson
Bólugil í Skagafirði (c) Róbert Daníel Jónsson

Eins og við greindum stuttlega frá í sumar verður umsóknarferli Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða apeins með fyrra fallinu í ár og því vonandi að einhverjir hafi notað tímann í að leggja drög að umsókn.  Umsóknarfrestur í ár er til kl. 13 miðvikudaginn 5. október. 

Hvað er styrkhæft?

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:

  • Öryggi ferðamanna.
  • Náttúruvernd og uppbyggingu.
  • Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
  • Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.

Hins vegar er sjóðnum ekki heimilt m.a. að:

  • Að bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
  • Að fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru- og menningarsögulegum minjum.
  • Að veita fjármagni til verkefna sem þegar er lokið.

Umsóknarferlið

Ýtarlega er farið yfir umsóknarferlið og þau skilyrði sem þarf að uppfylla á sérstakri umsóknarsíðu  á vef Ferðamálastofu en sjálft umsóknarformið er á island.is. Meðal annars kemur fram að umsóknir geta fallið í annan eftirfarandi flokka eftir eðli verkefnisins:

  • I - Þjónusta/aðstaða á ferðamannastað eða ferðamannaleið:
  • II - Úrbætur vegna náttúruverndar og/eða öryggis á ferðamannastað eða ferðamannaleið:

Mikilvægt að vanda umsóknir !

Væntanlegir umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel  þau lög sem gilda um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða nr. 75/2011 og reglugerð nr. 782/2017 og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér vel gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt ýmsum frekari upplýsingum sem finna má á umsóknarsíðu. 

Opna umsóknarsíðu

 

Við minnum svo á að við erum að sjálfsögðu reiðubúin að aðstoða við gerð umsókna og hvetjum þá sem vilja nýta sér það að vera í sambandi sem first.