Byggðaþróun – styrkir til meistaranema

Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Kostur er ef verkefnin hafa skírskotun til byggðaáætlunar. Til úthlutunar er allt að 1.000.000 kr. og stefnt er að því að veita allt að fjóra styrki.

 

Rafrænt umsóknarform,  verklagsreglur vegna úthlutunar og byggðaáætlun 2018-2024 er að finna á vef Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is.

 

Í umsókn skal meðal annars koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það styður við byggðaþróun.

 

Nánari upplýsingar veitir Sigríður K. Þorgímsdóttir.

Netfang: sigga@byggdastofnun.is, sími 455 5461 og 869 7203

 

Umsóknarfrestur er til miðnættis  þriðjudaginn 2. nóvember 2021.