Bókun stjórnar SSNV vegna fyrirhugaðra breytinga á lögregluembættum

Á 140. fundi stjórnar SSNV sem haldinn var 3. júní sl. var lagt fram erindi frá Sigurði Hólmari Kristjánssyni, settum lögreglustjóra á Norðurlandi vestra, þar sem hann lýsir áhyggjum sínum vegna fyrirhugaðra breytinga dómsmálaráðherra/Alþingis á lögregluembættum. 

Stjórn lagði fram eftirfarandi bókun: 

Stjórn SSNV lýsir yfir áhyggjum af þeim áhrifum sem mögulegar breytingar á skipulagi lögregluembætta kunna að hafa á þjónustu, störf og stjórnsýslu í landshlutanum. 

Stjórn SSNV leggur áherslu á að löggæsla á Norðurlandi vestra gegnir lykilhlutverki í öryggi íbúa, farsæld barna og ungmenna og samstarfi við sveitarfélög, skóla, heilbrigðisþjónustu og aðra þjónustuaðila. Mikilvægt er að allar breytingar á skipulagi taki mið af sérstöðu dreifbýlis, miklum vegalengdum og þeim aðstæðum sem einkenna Norðurland vestra. 

Stjórn SSNV telur mikilvægt að starfsemi lögreglunnar á Norðurlandi vestra verði ekki skert og að tryggður verði áframhaldandi rekstur lögreglustöðva á Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga. Þá er nauðsynlegt að standa vörð um þau sérhæfðu störf, þá þekkingu og það faglega starf sem byggt hefur verið upp innan embættisins á undanförnum árum. 

Jafnframt leggur stjórn SSNV áherslu á að allar skipulagsbreytingar innan ríkisstofnana verði metnar með hliðsjón af byggðasjónarmiðum og áhrifum þeirra á atvinnu, þjónustu og samfélagsþróun í landshlutanum. Stjórnin telur mikilvægt að ákvarðanir um framtíðarskipan lögregluþjónustu á landsbyggðinni verði teknar í virku samráði við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila á svæðinu. 

Stjórn SSNV leggur áherslu á að hagsmunir íbúa og sveitarfélaga á Norðurlandi vestra verði hafðir að leiðarljósi við alla stefnumótun og ákvarðanatöku um skipulag lögregluþjónustu í landshlutanum.