BEINT FRÁ BÝLI DAGURINN - 15 ÁRA AFMÆLISHÁTÍÐ UM LAND ALLT

Í tilefni að 15 ára afmæli Beint frá býli mun verða blósið til afmælishátíðar um land allt. Við hér á Norðurlandi vestra tökum heldur betur þátt og bjóðum til afmælishátíðarinnar á Stórhóli í Skagafirði, þar sem gestgjafinn er Sigrún Helga Indriðadóttir, bóndi og handverkskona. Metþátttaka er í okkar landshluta af bændum og handverksfólki sem eru öll að gera eftirtektarverða hluti í vöruþórun beint frá býli. Nánari dagskrá og upplýsingar þegar nær dregur. En takið daginn frá og við sjáumst í Skagafirði hjá Sigrúnu Helgu. Allar nánari upplýsingar má finna hér á vef Beint frá býli.