Á vef Stjórnarráðsins má finna auglýsingu frá Atvinnuvegaráðuneytinu um jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktunar á grænmeti, kartöflum og garðávöxtum til manneldis. Sótt er um á Afurð.
Áhugasamir þurfa að bregðast hratt við því umsóknum skal skilað eigi síðar en á miðnætti 15. ágúst næstkomandi.
Til að geta sent inn umsókn í Afurð þarf að liggja fyrir skýrsla í forritinu Jörð. Vakin er athygli á að hægt er að skila skýrslu án þess að endanleg uppskera ársins liggi fyrir.
Skilyrði fyrir veitingu stuðnings eru að hafa skilað inn skýrslu auk fullnægjandi túnkorta af þeim ræktunarspildum sem sótt er um styrk fyrir. Þá er lögð áhersla á skráningu ræktunar, áburðargjafar, varnarefnanotkunar o.fl., í samræmi við ákvæði reglugerðar um stuðning við garðyrkju nr. 1273/2020.
Framlag á hvern hektara (ha) fyrir hvert bú, tekur mið af heildarfjölda hektara sem sótt er um. Ekki er greitt framlag fyrir ræktun undir fjórðungi hektara.
Fjöldi hektara sem sótt er um reiknast í samræmi við eftirfarandi stuðla:
0,25-30 ha 1,0 fyrir rótarafurðir
0,25-30 ha 4,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar
> 30 ha 0,7 fyrir rótararfurðir
> 30 ha 3,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550