Ársþing SSNV verður haldið 14. apríl

31. ársþing SSNV verður haldið á Hótel Laugarbakka í V-Húnavatnssýslu, í Grettissal þann 14. apríl næstkomandi. Dagskrá hefst kl. 9:30 með Þingsetningu og stendur til kl. 14:00.

Á ársþingi SSNV eiga sæti fulltrúar sveitarfélaganna en hafa þeir einir atkvæðisrétt sem til þess eru kjörnir. Ársþing er opið til áheyrnar kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum, framkvæmdastjórum og starfsmönnum sveitarfélaga og starfsmönnum SSNV og tengdra verkefna á Norðurlandi vestra. 

Stjórn samtakanna er heimilt að bjóða til þingsins aðilum sem tengjast umfjöllun og starfi samtakanna, með málfrelsi og tillögurétti. Alþingismenn úr Norðvesturkjördæmi hafa rétt til setu á ársþingi með heimild til að ávarpa þingið. Ársþing SSNV fer með æðsta vald í málefnum samtakanna.

Skráning fer fram hér