Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga - málþing

Byggðastofnun, í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið boðar til málþings í Hofi, Akureyri, í dag 12. febrúar undir yfirskriftinni:
Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga - Frá áskorunum til aðgerða: leiðarvísir, verkfæri og reynsla sveitarfélaga.

Streymi á málþingið má finna hér.

Á málstofunni verða þarfir, væntingar og áskoranir íslenskra sveitarfélaga í forgrunni þegar kemur að aðlögun að áhrifum loftslagsbreytinga. Ný og fyrirhuguð verkfæri og leiðbeiningar fyrir sveitarfélög verða kynnt, þar á meðal fyrsta útgáfa leiðarvísis sem byggður er á aðgerð C.10 í byggðaáætlun þar sem aðferðafræði til mótunar aðlögunaraðgerða var þróuð og prófuð í fimm sveitarfélögum. Nýútgefin fyrsta aðlögunaráætlun Íslands verður kynnt, verkfæri í þróun, reynslusögur sveitarfélaga og áskoranir ræddar, ásamt fleiru.

Málþingið er vettvangur til umræðu um raunverulega þörf sveitarfélaga til aðlögunar að áhrifum loftslagsbreytinga, helstu áskoranir og tækifæri þeirra innan málaflokksins og hvernig best megi mæta þörfum sveitarfélaga á næstu árum.