Á þitt fyrirtæki heima á fjárfestahátíð Norðanáttar?

Norðanátt, með stuðningi frá Umhverfis- orku- og loftlagsráðuneytinu, stendur fyrir Fjárfestahátíð á Siglufirði 29. – 31. mars 2023.

Norðanátt leitar eftir nýsköpunarverkefnum í leit að fjármögnun úr öllum landshlutum.

Fjárfestahátíð Norðanáttar er vettvangur fyrir frumkvöðla sem hugsa stórt og vilja kynna sínar hugmyndir fyrir fjárfestum og þar með auka fjárfestingatækifæri á landsbyggðunum. Á fjárfestahátíðinni, sem haldin er í marsmánuði ár hvert, kynna frumkvöðlar verkefni sín sem snerta orkuskipti, hringrásarhagkerfið eða fullnýtingu auðlinda í takt við áherslur Norðanáttar; matur, orka, vatn.

Sótt er um á vefsvæði fjárfestahátíðarinnar. Umsóknarfrestur er til 15. desember nk.