Stjórn SSNV auglýsir eftir hugmyndum að áhersluverkefnum fyrir árið 2026. Áhersluverkefni eru hluti af Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2025-2029 og eru skv. samningi um sóknaráætlanir: „verkefni sem hafa beina skírskotun til sóknaráætlunar landshlutans og styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna“.
Dæmi um fyrri áhersluverkefni eru t.d.:
Hér má finna yfirlit fyrri áhersluverkefna SSNV.
Áhersluverkefni skulu eins og fram kemur í samningi um sóknaráætlanir hafa skýra mælikvarða og vera samþykkt af stjórn SSNV. Stjórn leggur mat á verkefnin og áskilur sér rétt til að gera breytingar á innsendum hugmyndum, þ.m.t. sameina sambærileg verkefni, samþykkja verkefni að hluta sem og í heild eða hafna öllum hugmyndum. Einnig þurfa verkefnin að hljóta staðfestingu stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál.
Ertu með hugmynd að verkefni sem:
Þá hvetjum við þig til að senda inn hugmynd þar sem fram kemur lýsing á verkefninu ásamt mögulegri framkvæmd þess, heildarkostnað verkefnis og áætlaðan kostnað fjármagnaðan af Sóknaráætlun.
Hugmyndir skulu sendar í gegnum rafrænt form fyrir 18. febrúar 2026. Ekki er tekið við hugmyndum eftir öðrum leiðum eða eftir þann tíma.
Gert er ráð fyrir að ákvörðun um áhersluverkefni liggi fyrir í mars 2025.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550