Rafrænn kynningarfundur fyrir framboð til sveitarstjórna á Norðurlandi vestra

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, í samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands og Eim, boða til rafræns fundar miðvikudaginn 6. maí kl. 10:00. Fundurinn fer fram á Teams og er sérstaklega ætlaður fulltrúum framboða til sveitarstjórna á Norðurlandi vestra.

Markmið fundarins er að veita skýra og hagnýta yfirsýn yfir hlutverk, verkefni og áherslur þessara þriggja aðila og hvernig starfsemi þeirra styður við atvinnuþróun, byggðamál og eflingu samstarfs sveitarfélaga á svæðinu. Með fundinum gefst þátttakendum tækifæri til að kynna sér betur þá þjónustu og úrræði sem standa sveitarfélögum, fyrirtækjum og frumkvöðlum til boða.

Oddvitar framboða eru sérstaklega hvattir til að taka þátt, en fundurinn er einnig opinn öðrum frambjóðendum sem og öllum áhugasömum íbúum sem vilja dýpka skilning sinn á starfsemi SSNV, Markaðsstofu Norðurlands og Eims og því hvernig þessi starfsemi nýtist svæðinu.

TEAMS hlekkur á fund.