Sérfræðingur samskipta og samfélags hjá RARIK

Sérfræðingur samskipta og samfélags

Langar þig að taka stökkið og verða hluti af liðsheild sem innleiðir þriðju orkuskiptin á Íslandi?

Við leitum að verklyndum, ófeimnum og orðheppnum einstaklingi með ákafan áhuga á gagnlegum samskiptum. Við viljum ráða liðsfélaga sem sér gæðin í því að vinna öll verk vel, stór og smá. Ef þú telur að samskipti séu hreyfiafl hugmynda, hafðu þá samband.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón og gerð efnis á vef- og samfélagsmiðlum
  • Hugmyndavinna, þróun og útfærsla á stafrænni miðlun og kynningarefni
  • Þátttaka í markaðssetningu, sköpun ímyndar og undirbúningi viðburða


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla af notkun vefumsjónarkerfa og stýringu samfélagsmiðla
  • Reynsla af innri og ytri samskiptamiðlun
  • Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hugmyndaauðgi og drifkraftur
  • Jákvætt hugarfar og þjónustulund
  • Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
  • Góð tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum
  • Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð hugsun
  • Nákvæm vinnubrögð og skipulagshæfni


Nýju skipulagi fylgja ný tækifæri. Með teymisvinnu og öflugri liðsheild náum við lengra. Öll störfin eru án staðsetningar og leggjum við áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika mannauðs. Við tökum vel á móti öllum.

Umsóknarfrestur er til og með 2. október 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Henrietta Þóra Magnúsdóttir (henrietta@intellecta.is).