Fundargerð úthlutunarnefndar 29. september 2021

Hér má nálgast pdf útgáfu fundargerðarinnar.

27. fundur Úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra, haldinn miðvikudaginn 29. sept. 2021, kl. 13:00. Fundurinn fór fram á Zoom.

Mætt til fundar:  Lárus Ægir Guðmundsson, formaður, Jóhanna Ey Harðardóttir, formaður fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar og Ragnhildur Haraldsdóttir, formaður fagráðs menningar. Einnig sátu fundinn Sveinbjörg Rut Pétursdóttir og Ástrós Elísdóttir, starfsmenn SSNV. Formaður nefndarinnar stýrði fundi.

 

Fyrir var tekið:

 

1. Drög að úthlutunarreglum fyrir árið 2022.

Fyrir fundinum lágu drög að úthlutunarreglum fyrir árið 2022. Farið var yfir drögin en þau svo samþykkt með áorðnum breytingum.

Reglurnar þurfa staðfestingu stjórnar SSNV áður en þær taka gildi.

 

2. Drög að matsblaði umsókna fyrir árið 2022.

Fyrir fundinum lágu drög að matsblaði vegna umsókna um styrk 2022. Drögin voru samþykkt óbreytt.

Matsblaðið þarf samþykki stjórnar SSNV áður en það tekur gildi.

 

3. Tímasetningar umsóknar- og úthlutunarferils vegna styrkveitinga f. 2022.

Samþykkt var að miða við eftirfarandi dagsetningar:

-            6. október 2021      - auglýst eftir umsóknum

-          12. nóvember 2021 - umsóknarfrestur rennur út

 

4. Næsti fundur úthlutunarnefndar.

Næsti fundur úthlutunarnefndar verður fimmtudaginn 18. nóvember kl 13:00 á Skagaströnd.

 

Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt, fundi slitið kl. 13:42.

 

Sveinbjörg Pétursdóttir

fundarritari