Fundargerð úthlutunarnefndar 18. nóvember 2021

Hér má nálgast pdf útgáfu fundargerðarinnar.

28. fundur Úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra, haldinn fimmtudaginn 18. nóvember 2021, kl. 13:00, að Einbúastíg 2 á Skagaströnd.

Mætt til fundar: Lárus Ægir Guðmundsson, formaður, Jóhanna Ey Harðardóttir, formaður fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar og Ragnhildur Haraldsdóttir, formaður fagráðs menningar.

Einnig sátu fundinn Ástrós Elísdóttir og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, starfsmenn SSNV.

Formaður nefndarinnar stýrði fundi.

 

Dagskrá:

 

1. Starfsreglur úthlutunarnefndar

Farið var yfir starfsreglur nefndarinnar.

 

2. Úthlutunarreglur og matsblað f. 2022

Farið yfir matsblað og úthlutunarreglur f. 2022

 

3. Hæfi/vanhæfi fulltrúa í úthlutunarnefnd

Farið yfir gögn um hæfi og vanhæfi.

 

4. Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra – umsóknir 2022

Alls bárust 115 umsóknir um styrki þar sem beðið var um 198 milljónir króna.

Nefndin fór yfir umsóknirnar og athugaði hvort öllum formskilyrðum væri fullnægt.

Niðurstaðan var sem hér segir:

Umsóknir nr. 22044 og 22106. Umsóknum vísað frá þar sem umsækjandi er ekki með lögheimili á Norðurlandi vestra, sbr. gr. 7 í úthlutunarreglum sjóðsins.

Umsókn nr. 22058. Umsókn vísað frá þar sem umsóknaraðili er opinber aðili og telst ekki gjaldgengur til stofn- og rekstrarstyrkja sbr. gr. 7 í úthlutunarreglum sjóðsins.

Umsókn nr. 22003. Umsókn vísað frá þar sem staðfestingar skráðra samstarfsaðila bárust ekki, sbr. greinar 10 og 11 í úthlutunarreglum sjóðsins.

Að því loknu var öðrum umsóknum vísað til umfjöllunar í viðkomandi fagráði.

Nefndin beinir því til fagráðs menningar að miða við 17 millj. kr. í stofn- og rekstrarstyrki.

 

5. Verkferlar við mat á umsóknum

Farið yfir verkferla fagráða við mat á umsóknum.

 

6. Dagsetningar næstu funda

Samþykkt að næsti fundur úthlutunarnefndar verði miðvikudaginn 15. desember 2021, kl. 10:00, á Skagaströnd.

 

7. Önnur mál

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 14.59.

 

Ástrós Elísdóttir, fundarritari