Fundargerð stjórnar 6. apríl 2018

 Hér má nálgast fundargerðina á pdf formi.

 

Fundargerð  28. fundar stjórnar SSNV 06. apríl 2018.

 

Föstudaginn 6. apríl 2018 kom stjórn SSNV saman til fundar á Skagaströnd og hófst fundurinn kl. 9:30.

Mætt voru: Adolf H. Berndsen, Sigríður Svavarsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson, Unnur Valborg Hilmarsdóttir og Björn Líndal Traustason framkvæmdstjóri sem ritaði fundargerð. Stefán Vagn Stefánsson formaður stjórnar setti fundinn og stjórnaði honum.

 

 

Dagskrá:

  1. Fundargerð 27. stjórnarfundar SSNV dags. 06. mars 2018
  2. Ársreikningur SSNV 2017
  3. Tillögur á 26. ársþingi SSNV
  4. Áhersluverkefni 2018 - 2019
  5. Skýrsla um mögulegar smávirkjanir á Norðurlandi vestra
  6. Skýrsla RHA um heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi vestra
  7. Skýrsla Byggðastofnunar um þróun mannfjölda til ársins 2066
  8. Fundargerðir
  9. Skýrsla framkvæmdastjóra
  10. Önnur mál
  11. Starfsmenn SSNV mæta til fundar

 

Afgreiðsla.

 

1.      Fundargerð 27. stjórnarfundar SSNV dags. 06. mars 2018.

Fundargerðin samþykkt.

 

2.      Ársreikningur SSNV 2017

Stjórn og framkvæmdastjóri undirrituðu ársreikninginn.

 

3.      Tillögur á 26. ársþingi SSNV

Stjórn samþykkir að leggja fram þrjár tillögur á 26. ársþingi SSNV. Tillögu um þóknun til stjórnar og nefnda, tillögu um greiðslur til úthlutunarnefndar og fagráða og tillögu um boðun aukaársþings SSNV.

 

4.      Áhersluverkefni 2018 -2019

Stjórn samþykkir tillögur framkvæmdastjóra um áhersluverkefni 2018 - 2019.

 

5.      Skýrsla um mögulegar smávirkjanir á Norðurlandi vestra

Skýrslan lögð fram til kynningar.

 

6.      Skýrsla RHA um heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi vestra

Skýrslan lögð fram til kynningar.

 

7.      Skýrsla Byggðastofnunar um þróun mannfjölda til ársins 2066

Skýrslan lögð fram til kynningar.

 

8.      Fundargerðir

Eftirfarandi fundargerðir lagðar fram til kynningar:

 

Stjórn Eyþings dags. 2. mars. 2018.

Stjórn Eyþings dags. 21. mars 2018.

Stjórn SASS dags. 2. febrúar 2018.

Stjórn SASS dags. 2. mars 2018.

Stjórn SSS dags. 7. mars 2018.

Stjórn SSH dags. 5. mars 2018.

Stjórn SSV dags 7. mars 2018.

Stjórn Samband ísl. sveitarfélaga dags. 23. mars 2018.

 

9.      Skýrsla framkvæmdastjóra

Flutt munnlega á fundinum.

 

10.  Önnur mál

 

11.  Starfsmenn SSNV mæta til fundar.

Stjórn og starfsmenn ræddu starfsemi samtakanna

 

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið kl. 12:00

 

Stefán Vagn Stefánsson (sign.)

 

Adolf H. Berndsen (sign.)

 

Gunnsteinn Björnsson (sign.)

 

Unnur Valborg Hilmarsdóttir (sign.)

 

Valgarður Hilmarsson (sign.)

 

Björn Líndal Traustason (sign.)