Fundargerð stjórnar 4. september 2018

Hér má nálgast fundargerðina á pdf formi. 

 

Fundargerð  36. fundar stjórnar SSNV 4. september 2018.

 

 

Þriðjudaginn 4. september 2018 kom stjórn SSNV til fundar á Sauðárkróki og hófst fundurinn kl. 09:30.

Mætt voru: Adolf H. Berndsen, Sigríður Svavarsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson, Elín Jóna Rósinberg, Valgarður Hilmarsson og Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Stefán Vagn Stefánsson formaður stjórnar setti fundinn og stjórnaði honum.

 

Dagskrá

  1. Fundargerð 35. fundar stjórnar SSNV, dags. 21. ágúst 2018.
  2. Staðfesting á breytingu á kjörnefnd aukaársþings.
  3. Undirbúningur haustþings þann 19. október 2018.
  4. Skýrsla um heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi vestra.
  5. Byggðaáætlun 2018-2024, sértækur byggðastuðningur, auglýsing um styrki til sértækra verkefna sóknaráætlunarsvæða.
  6. Fundargerðir:
    1. Stýrihópur um byggðamál, dags. 4. júní 2018
    2. Stjórn SSA, dags. 17. ágúst 2018
    3. Stjórn SASS, dags. 15. ágúst 2018
    4. Stjórn SSS, dags. 22. ágúst 2018
  7. Skýrsla framkvæmdastjóra.
  8. Önnur mál.

 

Afgreiðsla:

 

1.      Fundargerð 35. fundar stjórnar SSNV dags. 21. ágúst 2018

Fundargerðin samþykkt.

 

2.      Staðfesting á breytingu á kjörnefnd aukaársþings

Stjórn staðfestir breytingu á kjörnefnd sem samþykkt var með tölvupósti þann 22. ágúst 2018. Í kjörnefnd tekur sæti Álfhildur Leifsdóttir í stað Laufeyjar Kristínar Skúladóttur.

 

3.      Undirbúningur haustþings þann 19. október 2018

Framkvæmdastjóri fer yfir undirbúning haustþings sem haldið verður 19. október 2018. Stjórn samþykkir að þingið verði haldið í Félagsheimilinu á Blöndósi. Jafnframt samþykkt að eftir hefðbundin þingstörf verði  haldnar kynningar á samstarfsverkefnum og ýmsum sameiginlegum hagsmunamálum landshlutans, hugsaðar fyrir nýja sveitarstjórnarmenn. Að þingi loknu verður boðið upp á léttar veitingar.

 

4.      Skýrsla um heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi vestra

Lögð fram skýrsla um heilbrigðisþjónstu á Norðurlandi vestra sem unnin var af Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri.

 

  1. Byggðaáætlun 2018-2024, sértækur byggðastuðningur, auglýsing um styrki til sértækra verkefna sóknaráætlunarsvæða.

 

Rætt um möguleg verkefni í tengslum við úthlutun styrkja til sértækra verkefna sóknaráætlunarsvæða. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.

 

5.      Fundargerðir

Lagðar fram til kynningar:

  1. Stýrihópur um byggðamál, dags. 4. júní 2018
  2. Stjórn SSA, dags. 17. ágúst 2018
  3. Stjórn SASS, dags. 15. ágúst 2018
  4. Stjórn SSS, dags. 22. ágúst 2018

 

6.      Skýrsla framkvæmdastjóra

Framkvæmdastjóri fór yfir störf sín frá síðasta fundi. Flutt munnlega á fundinum.

 

7.      Önnur mál

Styrkir vegna frumathugana og rennslismælinga í tenglsum við áhersluverkefni 2018 um smávirkjanir á Norðurlandi vestra.

 

Stjórn samþykkir að auglýstir verði styrkir til frumathugana á hagkvæmni virkjana og/eða rennslismælinga á þeim stöðum þar sem frumathuganir hafi farið fram. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.

 

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið kl. 10:25

 

Stefán Vagn Stefánsson (sign.)

 

Adolf H. Berndsen (sign.)

 

Sigríður Svavarsdóttir (sign.)

 

Elín Jóna Rósinberg (sign.)

 

Valgarður Hilmarsson (sign.)

 

Unnur Valborg Hilmarsdóttir (sign.)