Fundargerð 135. fundar stjórnar SSNV, 3. febrúar 2026

Hér má nálgast fundargerð á pdf. 

 

Þriðjudaginn 3. febrúar 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Sauðárkróki. Hófst fundurinn kl. 9.00. 

Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.  

 

Dagskrá:  

 

  1. Kveikjan 

  1. Fjárframlög Sóknaráætlunar Norðurlands vestra 2026 

  1. Viðauki við Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2026 

  1. Skipting framlaga til atvinnuráðgjafar á landsbyggðinni árið 2026 

  1. Áhersluverkefni 2026 

  1. Greining á rekstrargrundvelli ráðstefnuhótels 

  1. A10 - Framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna 

  1. Greinargerð Sóknaráætlana 

  1. Markaðsstofa Norðurlands 

  1. Ráðstefna Vegagerðarinnar um verkefnastýringu stórframkvæmda   

  1. Tilnefning Kjörnefndar 

  1. Byggðagleraugu SSNV 2026   

  1. HeimaHöfn - niðurstöður og handbók 

  1. Ársþing SSNV 

  1. Framlögð mál til kynningar 

       a) Fundargerðir

       b) Umsagnir

  1. Skýrsla framkvæmdastjóra 

  

Afgreiðslur 

 

  1. Kveikjan 

Framhald á umræðum um verkefnið Kveikjan frá 133. fundi stjórnar SSNV hvar Sesselja Barðdal og Kristján Júlíusson kynntu verkefnið. Kveikjan er nýsköpunarverkefni á vegum Driftar EA sem hefur það að markmiði að efla nýsköpun innan starfandi fyrirtækja með því að tengja fræðanetið (háskóla og framhaldsskóla) og frumkvöðla við raunverulegar áskoranir í atvinnulífinu. Verkefnið er byggt upp að fyrirmynd Ignite Sweden og snýst um að styðja fyrirtæki í að innleiða nýjar lausnir, þróa vörur og auka samkeppnishæfni sína með því að vinna með frumkvöðlum.  

Framkvæmdastjóra falið að afla frekari upplýsinga. 

 

  1. Fjárframlög Sóknaráætlunar Norðurlands vestra 2026  

Lagður fram tölvupóstur frá Hólmfríði Sveinsdóttur, sérfræðingi í innviðaráðuneytinu, um fjárframlög til sóknaráætlana landshlutanna. Heildarframlög til Sóknaráætlunar Norðurlands vestra árið 2026 eru kr. 108.671.827 sem er lækkun um kr. 476.823 frá fyrra ári. Lagt fram til kynningar. 

  

  1. Viðauki við Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2026   

Lagt fram minnisblað frá framkvæmdastjóra vegna viðauka við Sóknaráætlun Norðurlands vestra fyrir árið 2026. Um er að ræða 35 milljónir króna sem koma í hlut Norðurlands vestra og hvernig ráðstafa skuli fjármunum. Stjórn landshlutasamtakanna ber ábyrgð á hvernig fjármunum er ráðstafað og gerir það með vísun í sóknaráætlun landshlutans. 

Stjórn samþykkir að veita fjármunum til áhersluverkefna og felur framkvæmdastjóra að auglýsa eftir umsóknum. 

 

  1. Skipting framlaga til atvinnuráðgjafar á landsbyggðinni árið 2026 

Lagður fram tölvupóstur frá Sigríði Elínu Þórðardóttur forstöðumanni þróunarsviðs Byggðastofnunar dags. 16. desember 2025 þar sem kynnt er framlag til atvinnuráðgjafar á landsbyggðinni árið 2026. Á árinu 2026 mun SSNV fá 33.620.101 kr. til atvinnuráðgjafar á starfssvæði sínu, er þar um að ræða lítilsháttar hækkun frá árinu 2025, m.a. vegna viðkvæmra svæða og að fjölbreytni atvinnulífs í landshlutanum hefur minnkað. Lagt fram til kynningar. 

 

  1. Áhersluverkefni 2026   

Framkvæmdastjóri fer yfir stöðu á áhersluverkefnum frá árinu 2025. Flest áhersluverkefnin voru samþykkt til tveggja ára, 2025-2026, og hafa hlotið samþykki stýrihóps stjórnarráðs um byggðamál. Til ráðstöfunar fyrir 2026 eru 8.831.829 kr.  

Stjórn samþykkir að afla frekari upplýsinga um stöðu núverandi verkefna.  

 

  1. Greining á rekstrargrundvelli ráðstefnuhótels   

Kristín Katrín Guðmundsdóttir, ráðgjafi, kom til fundar, ásamt Davíð Jóhannssyni og Magnúsi Barðdal, og kynnti niðurstöður áhersluverkefnisins Tækifæragreining á hóteluppbyggingu. Markmið verkefnisins er að meta forsendur og tækifæri fyrir hótelrekstur á Norðurlandi vestra, meta þörfina á hótelrýmum og samanburður við önnur svæði. 

Stjórn þakkar Kristínu Katrínu fyrir góða kynningu og kortlagningu þeirra tækifæra sem eru á svæðinu. Stjórn felur framkvæmdastjóra að koma gögnunum á framfæri til viðeigandi hagaðila og birta á heimasíðu SSNV. 

 

  1. A10 - Framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna   

Innviðaráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög til verkefna  á sviði almenningssamgangna, sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036, aðgerð A.10 – Almenningssamgöngur á milli byggða. Framkvæmdastjóra falið að senda inn umsókn skv. umræðum. 

 

  1. Greinargerð Sóknaráætlana   

Út er komin greinargerð um sóknaráætlanir landshluta fyrir árin 2020 - 2024. Í þessari greinargerð Byggðastofnunar og stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál er gerð grein fyrir ráðstöfun fjárframlaga til sóknaráætlunarsamninga og framkvæmd þeirra á samningstímabilinu 2020 - 2024. Lagt fram til kynningar. 

 

  1. Markaðsstofa Norðurlands 

Halldór Óli Kjartansson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu, kemur til fundar á Teams og fer yfir verkefni Markaðsstofunnar. Halldór fór sérstaklega yfir hugsanlegt álag á ferðaþjónustu vegna almyrkva á sólu 12. ágúst nk. og tækifæri í aukinni ferðaþjónustu tengdri móttöku skemmtiferðaskipa. 

Stjórn þakkar Halldóri fyrir góða yfirferð og góðar umræður. 

 

  1. Ráðstefna Vegagerðarinnar um verkefnastýringu stórframkvæmda 

Vegagerðin boðar til ráðstefnu um verkefnastýringu stórframkvæmda og viðhalds miðvikudaginn 15. apríl 2026 á Grand Hótel Reykjavík. Lagt fram til kynningar. 

   

  1. Tilnefning kjörnefndar 

Skv. grein 4.3 í samþykktum SSNV ber stjórn að kjósa fimm manna kjörnefnd eigi síðar en 1. mars ár hvert. 

Stjórn kýs eftirtalda aðila í kjörnefnd: 

 

Álfhildur Leifsdóttir, Skagafjörður 

Guðmundur Haukur Jakobsson, Húnabyggð 

Halldór Ólafsson, Skagaströnd 

Sólborg S. Borgarsdóttir, Skagafjörður 

Þorleifur Karl Eggertsson, Húnaþingi vestra – formaður 

  

  1. Byggðagleraugu SSNV 2026 

Stjórn SSNV veitir ár hvert viðurkenninguna Byggðagleraugun til ráðuneytis, stofnunar eða fyrirtæki sem þykir hafa skarað fram úr í fjölgun starfa/verkefna í landshlutanum eða með öðrum hætti stuðlað að uppbyggingu hans. Er viðurkenningunni ætlað að hvetja forsvarsmenn stofnana og fyrirtækja til að horfa með “byggðagleraugunum” á verkefni sinna eininga og nýta þau tækifæri sem gefast til flutnings starfa/verkefna á landsbyggðina í samræmi við áherslur byggðaáætlunar. 

 

Aðilar sem til greina koma skulu; 

a) vera með starfsstöð í landshlutanum, 

b) hafa sýnt í verki vilja til að efla starfsstöðvar sínar í landshlutanum, 

c) eða með öðrum hætti stuðlað að fjölgun starfa í landshlutanum. 

 

Stjórn SSNV velur þann aðila sem viðurkenninguna hlýtur ár hvert og er viðurkenningin afhent á ársþingi samtakanna. 

 

Framkvæmdastjóra falið að kalla eftir tillögum. 

 

  1. HeimaHöfn - niðurstöður og handbók 

Handbók verkefnisins HeimaHöfn var lögð fram til kynningar fyrir stjórn. HeimaHöfn er heildstætt langtímaverkefni sem miðar að því að styrkja samkeppnishæfni og aðdráttarafl landbyggðarsamfélaga fyrir ungt fólk, með áherslu á jákvæða upplifun, framtíðarsýn og tengsl ungmenna við heimabyggð.  

 

  1. Ársþing SSNV   

Lögð fram drög að skipulagi og dagskrá ársþings SSNV. 

Stjórn samþykkir framlögð drög að dagskrá og felur framkvæmdastjóra undirbúning þingsins í samræmi við samþykktir samtakanna. 

 

  1. Framlögð mál til kynningar

          a) Fundargerðir

Stjórn SSH, 19. janúar 2026. Fundargerðin. 

Stjórn SASS, 5. desember 2025. Fundargerðin. Stjórn SASS, 9. janúar 2026. Fundargerðin.  Stjórn SSA, 16. janúar 2026. Fundargerðin

Stjórn SSNE, 8. janúar 2026. Fundargerðin. 

Stjórn SSS, 14. janúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SSV, 10. desember 2025. Fundargerðin. Stjórn Vestfjarðarstofu, 18. desember 2025. Fundargerðin

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 23. janúar 2026. Fundargerðin. 

Stjórn Markaðsstofu Norðurlands, 11. desember 2025. Fundargerðin. 

     b) Umsagnir 

Grænbók um byggðamál. Mál nr. S-22/2025. Umsagnarfrestur er til og með 2. mars 2026. 

Frumvarp til laga um Opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun. Mál nr. 320/2026. Umsagnarfrestur er til og með 10. febrúar 2026. 

Frumvarp til laga um Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir. Mál nr. 312/2026. Umsagnarfrestur er til og með 11. febrúar 2026. 

Drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga. Mál nr. 15/2026. Umsagnarfrestur er til og með 8. febrúar 2026. 

Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030. Mál nr. 322/2026. Umsagnarfrestur er til og með 9. febrúar 2026. 

 

 

Framkvæmdastjóra falið að vinna drög að umsögn um mál nr. 322/2026, nr. S-3/2026 og nr. 320/2026. Ekki þykir ástæða til umsagna um önnur mál. 

 

  1. Skýrsla framkvæmdastjóra 

Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. 

 

 

Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.18.  

 

Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.