Fundargerð 124. fundar stjórnar SSNV, 16. júní 2025

Hér má nálgast fundargerð á pdf. 

 

Fundargerð 124. fundar stjórnar SSNV, 16. júní 2025

 

Mánudaginn 16. júní 2025, kom stjórn SSNV saman til fundar á Sauðárkróki. Hófst fundurinn kl. 9.00.

Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Halldór Gunnar Ólafsson var með í fjarfundarbúnaði.

 

Dagskrá:

 

  1. Áhersluverkefni tengd ferðaþjónustu
  2. Lýðheilsukort Norðurlands vestra
  3. Fiðringur – aðkoma SSNV
  4. Erindi vegna Akureyrarflugvallar
  5. Erindi frá RÚV
  6. Farsæld barna
  7. Framlag til landshlutasamtaka sveitarfélaga vegna umhverfistengdra verkefna
  8. Málþing um byggðafestu ungs fólks
  9. Erindi vegna löggæslumyndavéla
  10. Erindi frá Bandalagi íslenskra listamanna
  11. Stafrænt ráð
  12. Haustþing SSNV
  13. Ársreikningur Markaðsstofu Norðurlands
  14. Framlögð mál til kynningar                                                                                                                                                                                                                          a) Fundargerðir                                                                                                                                                                                                                                                b) Umsagnir
  15. Skýrsla framkvæmdastjóra

 

 

Afgreiðslur

1. Áhersluverkefni tengd ferðaþjónustu

Magnús Barðdal, Guðlaugur Skúlason og Davíð Jóhannsson fóru yfir áhersluverkefni tengd ferðaþjónustu á starfssvæði SSNV. Kynnt var staða verkefna og næstu skref í áframhaldandi vinnu. Fram kom að verkefnin miða að því að styrkja innviði ferðaþjónustunnar á svæðinu. Stjórn SSNV þakkar fyrir greinargóða kynningu og tekur jákvætt í framhald verkefnanna.

 

2. Lýðheilsukort Norðurlands vestra

Berglind Björnsdóttir og Magnús Barðdal kynntu fyrstu drög að Lýðheilsukorti fyrir Norðurland vestra og mögulega útfærslu þess. Um er að ræða verkefni sem miðar að því að bæta lýðheilsu í landshlutanum og gera fjölskyldum kleift að nýta þá afþreyingu sem er í boði með hagkvæmum hætti. Stjórn SSNV fagnar þessu framtaki og telur verkefnið mikilvægt innlegg í stefnumótun og forgangsröðun í þágu lýðheilsu. Lagt er til að unnið verði áfram með verkefnið í samvinnu við sveitarfélög og viðeigandi stofnanir og fyrirtæki á svæðinu.

 

3. Fiðringur – aðkoma SSNV

Berglind Björnsdóttir og Guðlaugur Skúlason kynntu verkefnið Fiðring, eitt af áhersluverkefnum SSNE, sem SSNV hefur verið boðið að taka þátt í. Markmið verkefnisins er að efla listsköpun meðal ungmenna með því að hvetja þau til að semja, æfa og flytja eigin frumsköpun.

Stjórn SSNV lýsir yfir jákvæðni gagnvart verkefninu og mögulegri þátttöku Norðurlands vestra, en kallar eftir frekari upplýsingum um fyrirliggjandi kostnað áður en tekin er afstaða til þátttöku.

 

4. Erindi vegna Akureyrarflugvallar 

Sveitarfélögin á Norðurlandi samþykktu að senda inn sameiginlega áskorun vegna Akureyrarflugvallar. Erindið hefur verið sent inn til atvinnuvega- og fjármálaráðuneytisins. Lagt fram til kynningar.

 

5. Erindi frá RÚV

Erindi hefur borist frá Ríkisútvarpinu þar sem óskað er eftir fundi með fulltrúum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra í tengslum við vinnu RÚV við mótun landsbyggðarstefnu. Markmið fundarins er að ræða hvernig hægt sé að efla þjónustu RÚV á landsbyggðinni, styrkja tengsl við sveitarfélögin, jafna dreifingu viðmælenda og tryggja að fjölbreytileiki svæðanna endurspeglist í dagskrá Ríkisútvarpsins. Framkvæmdastjóra falið að finna heppilega dagsetningu og boða fundinn í samráði við RÚV. Fundurinn verður haldinn á Teams.

 

6. Framlag til landshlutasamtaka sveitarfélaga vegna umhverfistengdra verkefna

Lagt fram til umræðu minnisblað um framlag til landshlutasamtaka sveitarfélaga vegna umhverfistengdra verkefna, áður tekið fyrir á 123. fundi stjórnar. Framkvæmdastjóri fór með erindið inn á fund sveitarstjóra og kynnti tillögur sem byggja á umræðum meðal þeirra.

Sveitarstjórar óska eftir að hluti fjármagnsins verði nýttur til að vinna aðgerðaráætlun Loftslagsstefnu í samstarfi við sveitarfélögin í landshlutanum. Lagt er til að fenginn verði utanaðkomandi ráðgjafi með sérþekkingu á málaflokknum til að leiða þá vinnu.

Stjórn SSNV tekur undir mikilvægi verkefnisins og samþykkir að fela framkvæmdastjóra að vinna áfram með verkefnið og kalla eftir umfangi og áætluðum kostnaði.

Jafnframt ræddi stjórn um raforkuinnviði á Norðurlandi vestra og mikilvægi þess að raforkuskortur hamli ekki áframhaldandi atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Núverandi staða hefur haft verulega hamlandi áhrif á uppbyggingu atvinnulífs.

Heimamenn hafa lengi kallað eftir bættri flutningsgetu, enda er öruggt framboð raforku forsenda þess að fyrirtæki á svæðinu séu áfram samkeppnishæf og að landshlutinn í heild sinni geti tekið þátt í orkuskiptum og byggt upp framtíðaratvinnuvegi.

Stjórn SSNV samþykkir að láta gera úttekt á núverandi stöðu í raforkumálum á Norðurlandi vestra. Framkvæmdastjóra falið að óska eftir tilboði í úttektina.

 

7. Farsæld barna

Til fundar komu Sara Björk Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri Farsældar hjá SSNV, Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri Farsældarsviðs hjá Barna- og fjölskyldustofu, og Svala Hreinsdóttir, skólamálafulltrúi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Sara kynnti verkefni á verksviði Farsældar og fóru gestir yfir stöðu mála, áherslur og samstarfsfleti við sveitarfélögin í landshlutanum. Stjórn SSNV þakkar fyrir góða og gagnlega kynningu og fagnar því mikilvæga starfi sem unnið er í þágu farsældar barna og fjölskyldna á svæðinu.

 

8. Málþing um byggðafestu ungs fólks

„Hvað ef ég vil vera hér“ er yfirskrift málþings sem Nýheimar þekkingarsetur stendur fyrir dagana 23. og 24. september. Umfjöllunarefni málþingsins er ungt fólk, byggðafesta þeirra og framtíð á landsbyggðinni. Tilgangur málþingsins er að skapa vettvang fyrir umræðu og miðlun þekkingar og reynslu hvað varðar þær áskoranir og tækifæri sem blasa við í tengslum við búsetuval, atvinnu- og byggðaþróun og samfélagsþátttöku ungs fólks á landsbyggðinni. Fulltrúum sveitarfélaga víðsvegar af landsbyggðinni er boðið til málþingsins og mun dagskrá þess miða að því að skapa tækifæri til samtals og miðlunar þekkingar á milli þátttakenda um málefni ungs fólks og byggðanna. Lagt fram til kynningar.

 

9. Erindi vegna löggæslumyndavéla

Erindi hefur borist frá Húnaþingi vestra, fyrir hönd sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er eftir því að SSNV taki þátt í að leiða verkefni um uppsetningu öryggismyndavéla á innkomuleiðum inn í Norðurland vestra áfram, með hliðsjón af sameiginlegum hagsmunum sveitarfélaganna í landshlutanum. Stjórn SSNV vill árétta að verkefnið á að vera á höndum ríkisins en vill þó koma verkefninu áfram þar sem um mikilvægt öryggismál er að ræða sem getur skipt sköpum fyrir íbúa landshlutans.

Stjórn SSNV tekur jákvætt í erindið og leggur til að málið verði tekið fyrir í fjárhagsáætlun vegna 2026 á Haustþingi SSNV þannig að SSNV greiði 60% af áætluðum kostnaði og eftirstöðvar deilist niður á sveitarfélögin í hlutfalli við íbúafjölda. Stjórn felur framkvæmdastjóra jafnframt að vinna málið áfram.

 

10. Erindi frá Bandalagi íslenskra listamanna

Erindi hefur borist frá Bandalagi íslenskra listamanna (BÍL) þar sem vakin er athygli á starfsemi bandalagsins og reifaður möguleikinn á faglegri aðkomu BÍL að úthlutunum úr menningarsjóðum á landsbyggðinni. Markmiðið er að stuðla að aukinni fagmennsku og samræmingu í úthlutunarferlum sjóðanna.

Stjórn þakkar BÍL fyrir erindið og felur framkvæmdastjóra að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

 

11. Stafrænt ráð

Álfhildur Leifsdóttir fulltrúi SSNV í Stafrænu ráði sveitarfélaga fór yfir helstu verkefni ráðsins.
Stjórn SSNV leggur áherslu á að Stafrænt ráð sveitarfélaga fái aukið vægi og burði til að leiða stafræna umbreytingu í samræmi við þarfir sveitarfélaga og íbúa og í samstarfi við ríkið.

Ráðið gegnir lykilhlutverki í að samræma og þróa sameiginlegar stafrænar lausnir sveitarfélaga og ríkis. Meðal verkefna eru þróun umsóknaafgreiðslukerfisins Veitu, snjallmennisins Bjargar, Frigg nemendagagnagrunnsins og innkaupakerfis fyrir sveitarfélög.

Með sameiginlegri nálgun má auka skilvirkni, bæta þjónustu og draga úr kostnaði – og því er nauðsynlegt að styrkja ráðið faglega og fjárhagslega.

 

12. Haustþing SSNV

Haustþing SSNV er áætlað 15. október 2024 í Skagafirði. Formaður kynnti tillögu að skipulagi þingsins. Stjórn samþykkir að haustþing SSNV verði haldið á Teams.

 

13. Ársreikningur Markaðsstofu Norðurlands

Ársreikningur Markaðsstofu Norðurlands lagður fram til kynningar.

 

14. Framlögð mál til kynningar

a) Fundargerðir

Stjórn SSH, 19. maí 2025. Fundargerðin.

Stjórn SSH, 2. júní 2025. Fundargerðin.

Stjórn SSV, 30. apríl 2025. Fundargerðin.

Stjórn SSNE, 7. maí 2025. Fundargerðin.

Stjórn SSNE, 4. júní 2025. Fundargerðin.

Stjórn SASS, 9. Maí 2025. Fundargerðin.

Stjórn SSA. 2. maí 2025. Fundargerðin.

Stjórn Vestfjarðarstofu, 30. apríl 2025. Fundargerðin.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 27. maí 2025. Fundargerðin.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 16. maí 2025. Fundargerðin.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 30. apríl 2025. Fundargerðin.

Stjórn stýrihóps stjórnarráðs um byggðamál, 5. maí 2025. Fundargerðin.

 

b) Umsagnir

Frumvarp til loftslagsmála. Mál nr. S-97/2025. Umsagnarfrestur er til og með 29. ágúst 2025.

Áform um endurskoðun sveitarstjórnarlaga. Mál nr. S-88/2025. Umsagnarfrestur er til og með 23. júní 2025.

Áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja). Mál nr. S-89/2025. Umsagnarfrestur er til og með 23. júní 2025.

 

Framkvæmdastjóra falið að vinna drög að umsögn um Áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja). Ekki þykir ástæða til að senda umsagnir um önnur mál.

 

 

15. Skýrsla framkvæmdastjóra

Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega.

 

 

Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.02.

 

Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.