Yfirferð umsókna í Uppbyggingarsjóð

Frestur til að sækja um styrki í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra fyrir árið 2023 rann út þriðjudaginn 1. nóvember síðastliðinn. Þátttaka var góð og bárust alls 98 umsóknir í sjóðinn þar sem óskað var eftir 179 milljónum króna. Til úthlutunar eru rúmar 70 milljónir króna.

  • Umsóknir um stofn- og rekstrarstyrki stofnana á sviði menningarmála voru 14 og alls sótt um 36 milljónir króna.
  • Umsóknir um verkefnastyrki á sviði menningar voru 47 og alls sótt um 71 milljón króna.
  • Umsóknir um verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar voru 37 og alls sótt um 71,8 milljón króna.

Það er ljóst að enginn hörgull er á hugmyndaríku og framtakssömu fólki á svæðinu og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.

Nú fer í hönd yfirferð umsókna hjá úthlutunarnefnd og fagráðum Uppbyggingarsjóðs. Stefnt er að því að svör berist umsækjendum fum mánaðarmótin nóv/des.