Vinningshafar - Könnun á fjarskiptasambandi

Þátttakendum í könnun á fjarskiptasambandi í dreifbýli á Norðurlandi vestra var gefinn kostur á að skrá netfang sitt og fara í lukkupott. Vinningurinn var ekki af verri endanum, dregið var um tvö 10 þús króna gjafabréf í Sölubíl smáframleiðenda sem fer um héruð reglulega og selur gómsætan varning beint frá býli.

 

Vinningshafarnir voru:

 

Valur Valsson, Áshildarholti

Sigurður Erlendsson, Stóru-Giljá

 

Um leið og við þökkum öllum þeim sem tóku þátt í könnuninni óskum við þeim félögum til hamingju með vinninginn. Þeir verða ekki svangir á aðventunni.

 

Minnum á jólaferð sölubílsins sem verður 13.-18. desember. Fylgist með tíma- og dagsetningum á hverjum stað á facebook síðu Vörusmiðjunnar.