Fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 9:30–11:00 fer fram alþjóðleg vefstofa á Zoom um viðskiptamódel samfélagsdrifinna fyrirtækja í dreifbýli. Vefstofan fer fram á ensku og gæti höfðað til frumkvöðla, stuðningskerfis samfélagsfrumkvöðla, stefnumótenda og annarra sem hafa áhuga á samfélagslegri nýsköpun og þróun í dreifbýli.
Markmið vefstofunnar er að veita innsýn og innblástur með stuttri fræðilegri umfjöllun og hagnýtum dæmum. Meðal fyrirlesara eru fulltrúar frá Jobloop, Gróanda, East of Moon, The Center for Expertise of Social Entrepreneurship og Mid Sweden University.
Vefstofan er skipulögð af MERSE verkefninu í samstarfi við Mid Sweden University og Vestfjarðastofu. MERSE er alþjóðlegt samstarfsverkefni styrkt af Interreg Northern Periphery and Arctic Programme.
Áhugasöm eru hvött til að kynna sér nánari upplýsingar á heimasíðu Vestfjarðastofu, taka þátt, fá innblástur, læra um viðstkiptamódel í dreifbýli og tengjast öðrum sem starfa á þessu sviði.
Hér er skráningarsíða viðburðarins.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550