Vel var mætt á opinn íbúafund á Hótel Laugarbakka í gær þar sem Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) stóðu fyrir fundi um línustæði, eignarrétt og endurgjald.
Sveinbjörg Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, setti fundinn og bauð Torfa Jóhannesson á svið. Torfi kynnti skýrslu sem unnin var fyrir SSNV og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) um málefnið.
Í kynningu sinni fjallaði Torfi um reynslu nágrannaríkja Íslands – Svíþjóð, Noreg og Danmörk – af samráði við landeigendur vegna skipulags og uppbyggingar línustæða. Einnig fór hann yfir hvernig verðmati og greiðslum til landeigenda fyrir afnot lands undir línustæði er háttað í þessum löndum.
Fram kom í erindi hans að 21. öldin muni að miklu leyti einkennast af aukinni raforkuþörf og því sé mikilvægt að efla samtal, styrkja samráð og skýra verklag um uppbyggingu innviða til framtíðar. Jafnframt sé nauðsynlegt að endurgjald fyrir land sé sanngjarnt og endurspegli raunverulegt virði þess.
Að lokinni kynningu stýrði Gísli Einarsson pallborðsumræðum. Auk Torfa tóku þátt Friðrik Már Sigurðsson, Ragna Árnadóttir, Guðmundur Haukur Jakobsson og Magnús Magnússon. Þar skiptust þátttakendur á sjónarmiðum og svöruðu spurningum fundargesta. Umræður voru málefnalegar og gagnlegar.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550