Vel heppnuð uppskeruhátíð Matsjárinnar

Á dögunum var haldin glæsileg uppskeruhátíð og matarmarkaður Matsjárinnar á Hótel Laugarbakka á Norðurlandi vestra. Um var að ræða lokaviðburð 14 vikna “masterclass” námskeiðs sem fór af stað í byrjun janúar 2022. Á þessu 14 vikna tímabili voru haldnir sjö fræðslufundir og sjö svokallaðir heimafundir sem fram fóru á netinu.

Lagt var upp með að veita fræðslu til smáframleiðenda matvæla til að styðja þá í að auka verðmætasköpun, styrkja stöðu sína, efla framleiðslu, auka sölutekjur og  sjálfbærni í rekstri.

Markmið Matsjárinnar var að auka innsýn þátttakenda í rekstur og innviði fyrirtækisins með það fyrir augum að finna leiðir til að auka hagkvæmni, bæta rekstur, auka fagmennsku og innleiða samfélagsábyrgð .

Á síðasta heimafundinum var svo uppskeruhátíð verkefnisins og matarmarkaður þar sem þátttakendur sem allir eru félagsmenn í Samtökum smáframleiðenda matvæla, gátu loksins hist í raunheimum og gestum gafst tækifæri til að kynna sér og kaupa vörur þeirra. Daginn eftir heimsóttu þátttakendur smáframleiðendur á svæðinu, þar með talið Vörusmiðju BioPol á Skagaströnd.

 

Hópur þátttakenda uppskeruhátíðar Matsjárinnar á Hótel Laugarbakka.

Um 75 framleiðendur af öllu landinu fóru í gegnum Matsjánna í ár og hafði um helmingur tök á að taka þátt í uppskeruhátíðinni og matarmarkaðinum á Hótel Laugarbakka til að uppskera eftir vinnu vetrarins. Áhugi á matarmarkaðinum og smáframleiðendunum var mikill en talið er að um 100 manns hafi sótt markaðinn.

 

Samstarfsaðilar verkefnisins eru Samtök smáframleiðenda matvæla, SSNV, SSNE, Austurbrú, Vestfjarðarstofa, SSV, SASS, Heklan atvinnuþróunarfélag og samtök sveitarfélaga á Höfuðborgarsvæðinu. Ráðgjafafyrirtækið RATA sá um að leiða verkefnið fyrir hönd samstarfsaðilanna. Matsjáin var styrkt af Matvælasjóði.

Neutral Grey Work From Home Photo Collage by SSNV