Vel heppnað ársþing að baki

Ársþing SSNV fór fram við góðar undirtektir og var vel sótt af fulltrúum sveitarfélaga og öðrum gestum. Þingið einkenndist af málefnalegum umræðum og fróðlegum erindum.

Tveir þingmenn kjördæmisins, Stefán Vagn Stefánsson og Ólafur Adolfsson, sátu þingið og tóku virkan þátt í umræðum um hagsmunamál Norðurlands vestra. Mikilvægt er fyrir sveitarstjórnarfulltrúa að fá tækifæri til að eiga samtal við þingmenn kjördæmisins og skapaðist góð umræða um stöðu og framtíð landshlutans. Við þökkum Ólafi og Stefáni kærlega fyrir komuna.

Á þinginu var einnig boðið upp á áhugaverða fyrirlestra. Þorkell Stefánsson, sérfræðingur hjá Byggðastofnun, fjallaði um mælaborð Byggðastofnunar þar sem finna má fjölbreytt og gagnleg gögn, m.a. um byggðaþróun. Mælaborðið er mikilvægt verkfæri fyrir sveitarstjórnarfólk og aðra sem vilja styðja við upplýsta ákvarðanatöku.

Þá flutti Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshreppur, erindi um nýtingu gervigreindar í stjórnsýslu sveitarfélaga. Erindið var bæði fræðandi og hvetjandi og vakti mikinn áhuga meðal fundargesta.

Hápunktur þingsins var veiting viðurkenningarinnar Byggðagleraugun, sem veitt var tveimur framúrskarandi fyrirtækjum á Norðurlandi vestra.

Annars vegar hlaut FISK Seafood á Sauðárkróki viðurkenninguna fyrir að sýna í verki hvernig atvinnulífið getur verið drifkraftur jákvæðrar samfélagsþróunar, meðal annars með því að bjóða starfsfólki sínu upp á íslenskunám á vinnutíma og að kostnaðarlausu.

Hins vegar hlaut Borealis Data Center á Blönduósi viðurkenningu fyrir öfluga uppbyggingu gagnavers og þau jákvæðu áhrif sem starfsemin hefur haft á atvinnulíf á svæðinu, meðal annars með fjölgun starfa og aukinni verðmætasköpun.

Stjórn SSNV óskar handhöfum Byggðagleraugnanna 2026 innilega til hamingju með þann árangur sem þau hafa náð og þakkar öllum sem komu að skipulagi og framkvæmd þingsins. Ársþingið undirstrikar mikilvægi samvinnu og sameiginlegrar sýnar fyrir áframhaldandi uppbyggingu Norðurlands vestra.