Vaxtarrými - opið fyrir umsóknir!

Nýsköpunarhreyfingin Norðanátt býður nú upp á öflugt Vaxtarrými í annað sinn.

Vaxtarrými er átta vikna viðskiptahraðall beint að sjálfbærni, með áherslu á mat, vatn og orku þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakinu. Vaxtarrými hefst 3. október og lýkur 24. nóvember.

Vaxtarrými er byggt upp að fyrirmynd viðskiptahraðla og er sérhannað með þarfir teymanna sem taka þátt í huga og hafa þau þannig áhrif á þá fræðslu sem stendur þeim til boða.

Hraðallinn fer að mestu leyti fram á netinu en teymin hittast fjórum sinnum meðan á verkefninu stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi. Þátttakendur kynnast reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum, fjárfestum og stjórnendum fyrirtækja á Norðurlandi og víðar á ráðgjafafundum, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.

Leitast er eftir þátttakendum, þ.e. frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Vaxtarrými Norðanáttarinnar til að vaxa. 

Átta teymi tóku þátt í Vaxtarrými 2021 og stendur þeim til boða að taka þátt sem svokallaðir Alumni frumkvöðlar og sitja fræðslufundi og leiðbeina árganginum í ár. Þannig má skapa virkt frumkvöðlasamfélag með jafningjaráðgjöf á Norðurlandi. 

Kynningarfundur Vaxtarrýmis fer fram 13. september í gegnum netið - auglýst nánar þegar nær dregur.

Umsóknarfrestur er til og með 19. september. Í framhaldinu verða valin sex til átta teymi til þátttöku.

Vaxtarrými hefst 3. október og lýkur 24. nóvember með veglegum lokaviðburði þar sem þátttökuteymin halda fjárfestakynningar.

 

Smellið hér til að opna umsóknarformið. 

Samstarfsverkefnið Norðanátt er hreyfiafl sem miðar að því að skapa kraftmikið umhverfi á Norðurlandi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Að verkefninu Norðanátt koma Eimur, SSNV, SSNE og RATA.