Target Circular meðal áhugaverðustu Interreg-verkefna Evrópu

Target Circular, Interreg-verkefni sem SSNV hefur tekið þátt í undanfarin ár, hefur verið valið eitt af úrslitaverkefnum Interreg Slam 2026–2027.

Interreg Slam er evrópsk keppni þar sem dregin eru fram góð dæmi um samstarfsverkefni sem hafa raunveruleg áhrif í samfélögum og byggðum Evrópu. Að þessu sinni bárust 71 umsókn frá 25 Interreg-áætlunum og er Target Circular eitt sex verkefna sem komust áfram.

Interreg, Norðurslóðaáætlunin, styður samstarf milli landa og svæða í Evrópu. Í gegnum áætlunina vinna ólíkir aðilar saman að sameiginlegum áskorunum, til dæmis á sviði byggðaþróunar, nýsköpunar, sjálfbærni og umhverfismála.

Target Circular verkefnið var hluti áætlunarinnar og leiddi saman samstarfsaðila frá Íslandi, Írlandi, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Verkefninu er ætlað m.a. að þjálfa frumkvöðla og/eða fyrirtæki í að hugsa vörur sínar og þjónustu eins og vísindamenn; að leggja fram tilgátu og prófa áður en farið er af stað. 

Í stað þess að vinna beint með öllum fyrirtækjum var þróað efni sem gerir fundi með atvinnuráðgjöfum markvissari og árangursríkari. Verkefnið hefur gefið starfsfólki SSNV tækifæri til að sækja þekkingu í alþjóðlegt samstarf og tengja okkar landshluta við sambærileg svæði á norðlægum slóðum.

Í næsta skrefi keppninnar Interreg Slam 2026-2027 verður unnið kynningarmyndband um Target Circular og opnað verður fyrir almenna kosningu í nóvember 2026. Lokakynning verkefnanna fer síðan fram á Interreg Knowledge Fair í mars 2027.

Það er sérstaklega ánægjulegt að Target Circular fái þessa viðurkenningu og svo jákvæða athygli á evrópskum vettvangi.