Svæðisáætlun úrgangs - Frestur til að koma með athugasemdir rennur út 31. mars

Sveitarfélög á starfssvæðum SSNV og SSNE hafa undanfarið unnið að sameiginlegri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs í samræmi við 6. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, með síðari breytingum.

Vinna við gerð svæðisáætlunar hefur staðið yfir síðan í janúar 2022 og er hluti af vinnu sveitarfélaganna við aðlögun að nýrri löggjöf og um leið uppfærsla á gildandi svæðisáætlun sem gildir frá 2015-2026. Haldinn var stefnumarkandi fundur með kjörnum fulltrúum, starfsfólki sveitarfélaganna og öðrum áhugasömum þann 25. apríl 2022 og var sú vinna nýtt við gerð svæðisáætlunar.

Tillaga að svæðisáætluninni var send út 13. febrúar síðastliðinn og hefur almenningur tækifæri til að gera athugasemdir við hana til föstudagsins 31. mars.

 

Hægt er að nálgast tillögu að svæðisáætluninni hér  

 

Skriflegar ábendingar og athugasemdir skulu berast á netfangið stefan@environice.is eða í pósti á heimilisfangið:

Umhverfisráðgjöf Íslands ehf.

v/Svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi

Hvanneyrargötu 3

311 Hvanneyri