Sunnudagur á safni, 29. mars

Áfram höldum við með verkefnið Sunnudagar á safni, en það er samstarfsverkefni safna, setra og sýninga leitt af SSNV.

Er þetta í þriðja sinn frá áramótum sem söfn, setur og sýningar á Norðurlandi vestra taka þátt og hafa opið utan hefðbundins opnunartíma. 

Að þessu sinni eru það söfn, setur og sýningar í Húnaþingi vestra sem opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi næstkomandi sunnudag, 29. mars, sem er pálmasunnudagur. 

Sunnudaginn 15. mars höfðu fjölmargir staðir í Skagafirði opið og nýttu bæði íbúar og ferðafólk tækifærið og kíktu á það sem í boði var. Sumir gestanna voru að koma á staðina í fyrsta sinn, aðrir nýttu tækifærið og litu við á kunnuglegum slóðum. Takk fyrir að taka þátt, bæði staðarhaldarar og gestir. 

Sunnudagur á safni hljómar enn vel.