Sunnudagur á safni, 15. mars

Verkefnið Sunnudagar á safni, sem er hluti af samstarfi safna hjá SSNV, heldur áfram sunnudaginn 15. mars, en þá færist dagskráin í Skagafjörð.

Markmið verkefnisins er að efla samstarf safna, setra og sýninga á Norðurlandi vestra og bjóða íbúum og gestum upp á sérstaka menningarupplifun yfir vetrartímann, þegar margir þessara staða eru annars lokaðir.

Verkefnið fór vel af stað í Austur-Húnavatnssýslu með opnunum bæði á Skagaströnd og Blönduósi á konudaginn. Nú gefst gott tækifæri til að njóta fjölbreyttrar menningar í landshlutanum okkar og viljum við hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tilboð.