Atvinnuráðgjafar SSNV veita upplýsingar um styrki og styrkjamöguleika sem standa einstaklingum, fyrirtækjum og rannsóknaraðilum til boða. Á næstu mánuðum eru eftirfarandi sjóðir auglýstir:
- Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra – 1. nóvember
Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningar- og hinsvegar atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á Norðurlandi vestra.
- Íþróttasjóður – 3. október
Markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og eflingu íþróttastarfs fyrir börn og unglinga, efla þekkingu þjálfara og leiðbeinenda í íþróttastarf, auka gildi íþróttastarfs í forvörnum og auka veg og virðingu íþróttastarfs í samfélaginu
- Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna – 3. október Markmiðið er að efla rannsóknir og þróunarstarf og bæta samkeppnisskilyrði nýsköpunarfyrirtækja með því að veita þeim rétt til skattfrádráttar vegna kostnaðar við nýsköpunarverkefni.
- Listamannalaun – 3. október Tilgangur sjóðsins er að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög [ 57/2009.]
- Sviðslistasjóður – 3. október Veittir eru styrkir til einstakra verkefna atvinnusviðslistahópa. Umsókn í sviðslistasjóð getur einnig gilt sem umsókn til listamannalauna ef tilgreint í umsóknarformi.
- Framkvæmdasjóður Ferðamannastaða – 5. október Veittir eru styrkir annars vegar vegna þjónustu eða aðstöðu á ferðamannastað eða ferðamannaleið og hins vegar vegna úrbóta vegna náttúruverndar og/eða öryggis á ferðamannastað eða ferðamannaleið.
- Innviðasjóður – 1. nóvember Hlutverk Innviðasjóðs er að byggja upp rannsóknarinnviði á Íslandi. Markmiðið með sjóðnum er að efla innlendar vísindarannsóknir með því að skapa nýja möguleika til rannsókna með fjármögnun tækjabúnaðar/aðstöðu sem ekki er aðgengileg nú þegar.
- Loftslagssjóður – 6. desember
Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Styrkir til nýsköpunarverkefna eru ætlaðir m.a. til þess að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við aðlögun og innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum og hönnun.
Athygli skal vakin á því að listinn er ekki tæmandi skrá yfir alla styrki sem eru í boði. Ábendingar um fleiri sjóði skal senda á sveinbjorg@ssnv.is
Mikilvægt er að vanda vel til verka þegar sótt er um styrki. Á vefnum Frumkvöðlar.is eru gefin góð ráð til að hafa í huga varðandi styrkumsóknir. Áttavitinn hefur einnig gefið út leiðarvísi um hvernig maður skal sækja um styrki, nánari upplýsingar hér.
Atvinnuráðgjafar SSNV aðstoða umsækjendur við umsóknir og veita ráðgjöf. Nánari upplýsingar er að finna hér.