Styrkir til aðlögunar að lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í landbúnaði á árinu 2026. 

Framleiðendur sem hafa byrjað lífræna aðlögun í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar geta sótt um. Lífræna aðlögunin skal jafnframt vera undir eftirliti faggildu löggildingarstofunnar Túns.

 

Umsóknarfrestur á Afurð er til miðnættis 4. ágúst nk. Á Afurð má einnig finna upplýsingar um nauðsynleg fylgiskjöl með umsókn.

Nánari upplýsingar um styrkina, skilyrði og umsóknarferlið má finna á vef Stjórnarráðsins