Starfamessa Norðurlands vestra

Haustið 2017 var í fyrsta sinn haldin starfamessa á Norðurlandi vestra, sem þótti takast afbragðs vel og var ætlunin að slíkur viðburður yrði upp frá því fastur liður á 3ja ára fresti. Því hefði haustið 2020 verið næsta ræs, en sökum heimsfaraldursins varð nokkur bið. Nú er loks komið að næstu starfamessu sem haldin verður þriðjudaginn 22. nóvember og hafa Freyja Rut Emilsdóttir og Steinunn Gunnsteinsdóttir verið ráðnar til að halda utan um framkvæmdina.

Starfamessan sem er með áherslu á iðn-, verk-, tækni- og raungreinar er haldin í húsakynnum FNV. Ásamt nemum í FNV er gert er ráð fyrir að nemendur elstu þriggja stiga allra grunnskólanna á Norðurlandi vestra sæki viðburðinn og mun verkefnið standa straum af flutningi þeirra milli staða, eins og síðast. Á síðustu starfamessu voru um þrjátíu starfsgreinar kynntar og er vonast til að þær verði ekki færri í þetta sinn.  

Starfamessan er eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar landshlutans fyrir 2020-2024