Staða handverksfólks á Íslandi - könnun

Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) hefur umsjón með framkvæmd könnunar um stöðu handverksfólks á Íslandi, fyrir hönd sjálfseignarstofnunarinnar Handverks og hönnunar.

 Markmiðið með könnuninni er að öðlast dýpri skilning á umhverfi handverksfólks á Íslandi í víðu samhengi og bera kennsl á þá þætti sem þarfnast umbóta með þarfir iðkenda í huga. Tilgangurinn er að efla íslenskt handverk sem atvinnugrein, stuðla að tryggri framtíð þess fyrir ókomnar kynslóðir og auka skilning á handverki sem menningarverðmæti í samtímanum.

Könnunin ætluð handverksfólki á Íslandi. Þá er átt við aðila sem hafa eða hafa haft tekjur af því að vinna með handverk, til að mynda með sölu, námskeiðahaldi, styrkveitingum o.s.frv.

Handverk er hér skilgreint sem persónuleg tjáning á hugmynd í handverki, formi, litum og efni. Handverksmaðurinn býr yfir þekkingu á hráefninu, verkfærni og þeirri leikni sem þarf til að búa hlutinn til. Hver handverksgripur hefur oftast sín sérkenni þrátt fyrir að vera gerður í fleiri svipuðum eintökum.

Þeir þættir sem teknir eru fyrir snúa að skilgreiningum og sjálfsmynd, menningararfi, starfsumhverfi, hugverki, söluumhverfi, stjórnvöldum, Handverk og hönnun, og loks bakgrunni þátttakenda. Athugið að í könnuninni er orðið handverksmaður og listamaður notað yfir karlmenn, konur og kvár.

Hér er hlekkur á könnunina. Svörin eru nafnlaus og könnunin tekur um 8–12 mínútur.