Skúnaskralli - Barnamenningarhátíð Norðurlands vestra - frestað til vors 2022

Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta Skúnaskralli, Barnamenningarhátíð Norðurlands vestra, sem áætluð var nú í október, til vors 2022. 
Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að ekki verður unnt að halda hátíðina með þeim hætti sem áætlað var og tryggja að öll börn hafi jöfn tækifæri til þess að njóta listviðburðanna sem er einn helsti áhersluþáttur Barnamenningarhátíðarinnar. 
Mikil vinna hefur farið í að gera dagskrána sem glæsilegasta og ætlunin er að slá hvergi af kröfum í vor, þegar stefnan er sett á að halda þessa fyrstu barnamenningarhátíð landshlutans.