Sex teymi klára Startup Storm í Flugsafni Íslands

Sex nýsköpunarteymi á Norðurlandi kláruðu nýverið viðskiptahraðalinn Startup Storm sem Norðanátt, hreyfiafl nýsköpunar á Norðurlandi, stóð að.

Startup Stormur er sjö vikna viðskiptahraðall með áherslu á sjálfbærni og græn verkefni, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakið.

Þetta er í þriðja sinn sem Norðanátt stendur fyrir viðskiptahraðli. Start up stormur hófst 4. október. Þátttakendur hafa síðastliðnar sjö vikur fengið fræðslu, setið vinnustofur og myndað tengingar við reynslumikla aðila úr atvinnulífinu á svokölluðum mentorafundum.

Lokaviðburður var haldinn með pompi og prakt fimmtudaginn 16. nóvember síðastliðinn á Flugsafni Íslands. Nýsköpunarteymin stigu á stokk og kynntu verkefni sín fyrir fullum sal boðsgesta en um 80 manns sóttu viðburðinn og hlýddu á þeirra kraftmiklu kynningar. Á lokaviðburðinum var einnig fjölbreytt dagskrá, Vilhjálmur Bragason var kynnir kvöldsins og Albertína, Ottó og Katrín tóku umræðuna um  nýsköpun á Norðurlandi í pallborði. Sigurjón og Ragnheiður frá englafjárfestingafélaginu Nordic Ignite fræddu gesti um englafjárfestingar og frá KLAK komu Magnús og Jenna og kynntu Gulleggið, stærstu nýsköpunarkeppni landsins. 

Teymin sem kynntu verkefnin sín voru:

  • Ísponica - Amber Monroe 
    Ræktun grænmetis og kryddjurta með aquaponics (afrennsli fiskeldis) lóðréttri búskap. Markmiðið er að rækta mat innandyra, allt árið um kring með áherslu á sjálfbæra framleiðslu.
  • Kaffibrennslan í Skagafirði - Vala Stefánsdóttir
    Kaffibrennsla í Skagafirði, nýbrennt og ferskara kaffi
  • Rækta microfarm - Serena og Giacomo
    Minnkum kolefnisspor og drögum úr innflutningi og matarsóun. Rækta Microfarm er umhverfisvæn framleiðsla á grænsprettum, sælkerasveppum og hampblómum.
  • Sigló Sea - Laken Hives
    Sjálfbær ræktun/uppskera á þangi og kræklingum og samfélagsleg þróun ferðaþjónustu.
  • Vallhumall - Elínborg Ásgeirsdóttir 
    Gamalkunn íslensk lækningajurt fær nýtt hlutverk sem bragðefni í matvælaframleiðslu.
  • 3D Lausnir - Jón Þór og Arnar
    Hringrásasteypa og þrívíddarprentun.

 

Dómnefnd og gestir í sal fengu að kjósa um besta verkefnið og bar verkefnið 3D- lausnir sigur úr býtum og vann 500.000 kr sem mun vonandi nýtast vel í áframhaldandi þróun. 

Norðanátt óskar öllum teymunum sem tóku þátt innilega til hamingju og áframhaldandi góðs gengis. 

Norðanátt byggir á hringrás nýsköpunar þar sem frumkvöðlar fá tækifæri til að þróa hugmyndir sínar, vaxa og ná lengra. Hringrásin samanstendur af hugmyndasamkeppninni Norðansprotanum, viðskiptahraðlinum Startup Stormi Vaxtarrými og fjárfestahátíð sem haldin er á Siglufirði á vorin. Að Norðanátt standa Eimur, landshlutasamtökin SSNE og SSNV. Bakhjarl Norðanáttar er umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið.