Samtal um skapandi greinar: Skapandi ferli tölvuleikja

Áhugasömum um skapandi greinar og nýsköpun er bent á viðburð á vegum Rannsóknaseturs skapandi greina (RSSG), í samstarfi við CCP, sem fram fer miðvikudaginn 8. apríl kl. 10:15–11:45 í húsakynnum CCP í Grósku, Bjargargötu 1 í Reykjavík.

Að þessu sinni verður sjónum beint að tölvuleikjagerð sem skapandi grein og þeim fjölbreyttu ferlum sem liggja að baki þróun leikja. Fjallað verður um hvernig skapandi vinna og tæknileg þekking fléttast saman í leikjahönnun, sem og um þau tækifæri og áskoranir sem fylgja starfi innan greinarinnar. Viðburðurinn fer fram á ensku.

Fjórir fyrirlesarar veita innsýn í skapandi ferlið úr ólíkum áttum:
Halldór Snær Kristjánsson, framkvæmdastjóri, listrænn stjórnandi og meðstofnandi Myrkur Games, María Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Parity Games, Joon Van Hove, sjálfstætt starfandi leikjahönnuður, og Steingerður Lóa Gunnarsdóttir, sjálfstætt starfandi leikjahönnuður og stundakennari við Háskólann í Reykjavík.

Erindum verður streymt, en að þeim loknum lýkur útsendingu og opnað verður fyrir umræður meðal þeirra sem sækja viðburðinn á staðnum. CCP býður viðstöddum upp á kaffi.

Nánari upplýsingar um þátttakendur, dagskrá og skráningu má nálgast á vef viðburðarins. Einnig hefur verið stofnaður viðburður á Facebook.

Athygli er vakin á því að fundir af þessu tagi fara yfirleitt fram fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl. 8:30, en að þessu sinni er bæði um annan vikudag og aðra tímasetningu að ræða.