ReSource gerir samning um umhverfisvöktun fyrir Stekkjarvík

ReSource hefur gert samning við Norðurá bs. um umhverfisvöktun urðunarstaðarins í Stekkjarvík.

Norðurá bs. rekur urðunarstaðinn, sem er staðsettur í landi Sölvabakka á Blönduósi. Byggðasamlagið er í eigu þriggja sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, en þjónustusvæði urðunarstaðarins nær yfir mestallt Norðurland.

Samningurinn felur í sér að ReSource annist umhverfisvöktun sem Stekkjarvík ber að standa skil á samkvæmt starfsleyfi. Þar á meðal eru sýnatökur í vatni, sjó og mælingar á urðunargasi.

Niðurstöður vöktunarinnar eru birtar á vef Stekkjarvíkur auk þess sem gögnin eru vistuð og aðgengileg í vefviðmótinu eLandfill.