Nemendur takast á við öryggi kvenna í Afganistan á Model UN
Þann 7. mars fer fram Model UN þar sem þátttakendur setja sig í spor fulltrúa aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna UN og kynnast heimi alþjóðlegrar diplómasíu af eigin raun. Að þessu sinni verður fjallað um öryggi kvenna í Afganistan á vettvangi öryggisráðsins, þar sem þátttakendur takast á við raunveruleg og krefjandi málefni samtímans.
Engin sérstök reynsla er nauðsynleg, það eina sem þarf er áhugi á að læra meira um starfsemi Sameinuðu þjóðanna og alþjóðamál. Þátttakendur fá sent undirbúningsefni og áhugasömum verður boðið á undirbúningsfund til að efla öryggi og færni fyrir umræðurnar.
Model UN býður upp á skemmtilegt og lærdómsríkt tækifæri til að prófa sig áfram í ræðuhaldi, samningaviðræðum og samvinnu. Þátttakendur öðlast betri skilning á því hvernig Sameinuðu þjóðirnar starfa og hvernig ákvarðanir um stærstu mál heims eru teknar. Jafnframt fá þeir tækifæri til að móta hugmyndir og lausnir sem skipta máli, byggja upp tengslanet og kynnast jafnöldrum úr öðrum skólum.
Þátttaka í Model UN er einstök reynsla sem styrkir nemendur sem framtíðarleiðtoga og getur reynst dýrmæt í námi og starfi.
Við hvetjum unga og áhugasama að skrá sig hér.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550