Opinn fundur um greiðslur til landeigenda vegna línustæða

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra standa fyrir opnum fundi um málefni sem snerta bæði landeigendur, orkufyrirtæki og samfélagið í heild. Fundurinn fer fram þriðjudaginn 21. apríl kl. 20:00 á Hótel Laugarbakka.

Á fundinum mun Torfi Jóhannesson kynna samantekt sem unnin var fyrir SSNV og SSV. Í samantektinni er fjallað um hvernig nágrannalönd Íslands, Danmörk, Noregur og Svíþjóð, hafa hagað greiðslum til landeigenda fyrir notkun lands undir línustæði. Markmiðið er að varpa ljósi á ólíkar leiðir, bera saman lagaumhverfi og skoða hvernig nýta megi þessa reynslu til að móta skýrari, réttlátari og nútímalegri umgjörð um slíkar greiðslur hér á landi.

Að lokinni kynningu verða pallborðsumræður undir stjórn Gísla Einarssonar. Í pallborðinu sitja auk Torfa fulltrúar landeigenda, Landsnets og atvinnulífsins. Þar verður fjallað um sjónarmið ólíkra hagsmunaaðila og horft til framtíðar í uppbyggingu raforkuinnviða.

Fundurinn er öllum opinn og eru öll áhugasöm hvött til að mæta og taka þátt í umræðu um eitt af lykilmálum orkuskipta og uppbyggingar innviða á Íslandi.