Opið fyrir umsóknir um styrki úr FrumkvöðlaAuði

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr FrumkvöðlaAuði fyrir árið 2025. Umsóknarfrestur er til og með 10. júní nk.

FrumkvöðlaAuður hvetur konur til athafna með styrkjum til frumkvöðlastarfs þeirra. Sjóðurinn veitir styrki 19. júní ár hvert en verkefnin eru valin af stjórn sjóðsins. Stjórnin áskilur sér einnig rétt til að styrkja verkefni án umsóknar.

Í umsókn skal vera greinargóð lýsing á verkefninu, markmiði og tilgangi þess, stutt með viðeigandi gögnum s.s. viðskiptaáætlun, upplýsingum um fjármögnun verkefnis og eignarhald.

Umsóknum á að skila á netfangið frumkvodlaaudur@kvika.is í síðasta lagi 10. júní nk.

FrumkvöðlaAuður er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var af Auði Capital árið 2009. Í upphafi hét stofnunin AlheimsAuður og er markmið hennar að vera góðgerðarsjóður með það að meginstefnu að hvetja konur til athafna og frumkvæðis, einkum í þróunarlöndum. Sjóðurinn hefur þó í seinni tíð litið nær sér í styrkveitingum með áherslu á frumkvöðlastarf kvenna.

Umsóknaeyðublaðið og nánari upplýsingar má finna hér.