Öflugur liðsauki - Nýr starfsmaður til SSNV

Á dögunum auglýstu samtökin eftir atvinnuráðgjafa með áherslu á nýsköpun með umsóknarfrest til 30. janúar. Alls bárust 20 umsóknir um starfið. Úrvinnslu er nú lokið og hefur Ólöf Lovísa Jóhannsdóttir verið ráðin í starfið. Ólöf er með Msc. próf í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands og Bsc. próf í hagfræði frá sama skóla. Ólöf er stofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Greenfo og hefur í tengslum við þá vegferð mikla þekkingu og reynslu af rekstri, áætlanagerð, stafrænum miðlunarleiðum, styrksumsóknum og stoðkerfi nýsköpunar almennt. Hún hefur víðtæka verkefnastjórnunarreyslu úr störfum sínum sem sérfræðingur í umhverfisdeild Landsvirkjunar og við verkefnavinnu og gagnavinnslu fyrir Center Hotels. Ólöf mun hefja störf á næstu vikum.

 

Við bjóðum Ólöfu hjartanlega velkominn í hóp starfsmanna SSNV.