Nýr liðsmaður

Ástrós Elísdóttir hefur verið ráðin til SSNV sem verkefnisstjóri Sóknaráætlunar landshlutans og atvinnuráðgjafi.

 

Ástrós er með MA próf í ritlist frá Háskóla Íslands, BA próf í leikhúsfræðum frá Listadeild Háskólans í Bologna, auk þess að hafa lokið viðbótardiplomanámi til kennsluréttinda frá Háskóla Íslands sem og leiðsögumannanámi frá Leiðsöguskóla Íslands. Hún hefur umfangsmikla reynslu af verkefnastjórnun, rekstri og áætlanagerð, m.a. við framkvæmd ýmissa sérverkefna. Má þar nefna ritstjórn, uppsetningu ýmissa menningarviðburða og bókaútgáfu. Hún starfaði um nokkurt skeið sem fræðslustjóri Borgarleikhússins og tók þar m.a. virkan þátt í verkefnavali leikhússins, sinnti sýningarstjórn fyrir leikhúsið ásamt textagerð og vann að erlendu samstarfi.

 

Meðal verkefna Ástrósar verður umsjón með framkvæmd Sóknaráætlunar landshutans, þ.m.t. úthlutunarferli Uppbyggingarsjóðs, skýrslugerð, samskipti við styrkþega og upplýsingamiðlun um framgang áætlunarinnar. Hún mun jafnframt sinna almennri atvinnuráðgjöf með sérstakri áherslu á stuðning við menningartengda starfsemi á Norðurlandi vestra.

 

Megin starfsstöð Ástrósar verður á Skagaströnd með fastri vikulegri viðveru á Blönduósi.

 

Ástrós mun hefja störf í lok ágúst. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna í hóp starfsmanna SSNV og hlökkum til samstarfsins.