Norðurland vestra hleypur af stað: Skagastrandarhlaupið (Á Fram at work)

Áhugi á hlaupum og útivistarviðburðum hefur aukist jafnt og þétt á Íslandi á undanförnum árum og Norðurland vestra er engin undantekning. Í sumar verða haldnir þrír hlaupaviðburðir í landshlutanum sem eiga það sameiginlegt að byggja á frumkvæði heimafólks, efla hreyfingu og útivist og kynna þá fjölbreyttu náttúru sem svæðið hefur upp á að bjóða.

Skráning í hlaupin á Norðurlandi vestra: 
- Skagastrandarhlaupið: 19. júlí 2026
- Vatnsnes trail run: 24. júlí 2026 
- Molduxi trail: 7. ágúst 2026

Hlaupaviðburðir af þessu tagi skapa ekki aðeins tækifæri til hreyfingar og heilsueflingar heldur styrkja einnig samfélögin, auka sýnileika svæðisins og laða að gesti víðs vegar að. Með þessari fréttaröð vill SSNV varpa ljósi á það öfluga starf sem unnið er í landshlutanum við að þróa nýja viðburði og upplifanir fyrir íbúa og gesti.

Að þessu sinni er kastljósinu beint að nýjasta viðburðinum, Áfram at Work – Skagastrandarhlaupinu, sem verður haldið í fyrsta sinn sunnudaginn 19. júlí. Hlaupið sameinar götuhlaup, utanvegahlaup og fjölskylduhlaup í einstakri umgjörð þar sem náttúra, samfélag og hreyfing fara hönd í hönd. Markmiðið er að skapa nýjan árlegan viðburð sem styrkir lýðheilsu, eykur sýnileika Skagastrandar og laðar bæði heimafólk og gesti til þátttöku. SSNV bað tengilið hlaupsins um upplýsingar. 

 

Á Fram at Work - Skagastrandarhlaupið

Mynd tekin af Hjalta Viðar Reynissyni


Hugmyndin að hlaupinu

Að baki hlaupinu standa eigendur Atwork á Íslandi sem nýverið opnuðu Atwork-setur á Skagaströnd. Þar er boðið upp á vinnuaðstöðu og gistingu fyrir listafólk, rithöfunda, tónlistarfólk og aðra sem vilja skapa í friðsælu umhverfi.

Hugmyndin að hlaupinu kviknaði í samtölum við heimafólk og endurspeglar þann mikla áhuga sem er á hlaupum hjá forsvarsfólki verkefnisins. Markmiðið er að skapa nýjan árlegan viðburð sem eflir hlaupamenningu, heilsu og útivist á svæðinu.

Samfélagið sameinast um hlaupið

Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á samstarf við heimafólk. Ungmennafélagið Fram tekur virkan þátt í undirbúningi og framkvæmd hlaupsins og mun hagnaður renna til eflingar á starfi félagsins.

Einnig koma sveitarfélagið Skagaströnd, Kvenfélagið Elding og Björgunarsveitin Strönd að verkefninu. Sjálfboðaliðar sjá meðal annars um brautarvörslu, drykkjarstöðvar, marksvæði og aðra framkvæmd, á meðan björgunarsveitin annast öryggisgæslu á leiðunum. Þau leita eftir liðsauka sjálfboðaliða með brautarvörslu nánar hér ef einhver hefur tök á.

Mynd tekin af Hjalta Viðari Reynissyni        

Náttúra, hreyfing og samfélag

Skipuleggjendur telja viðburðinn skipta miklu máli fyrir samfélagið á Skagaströnd. Hann hvetur fólk til hreyfingar, styrkir samheldni íbúa og kynnir jafnframt náttúru svæðisins fyrir gestum hvaðanæva af landinu.

Spákonufellið er eitt helsta kennileiti Skagastrandar og utanvegahlaupið býður upp á einstaka leið um fjallið og nágrenni þess. Að hlaupi loknu býðst þátttakendum meðal annars kökuhlaðborð, frítt í sund og gufu, auk þess sem gestir eru hvattir til að njóta þeirrar afþreyingar sem Skagaströnd hefur upp á að bjóða.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Myndir teknar af Ólafi S. Benediktssyni. 

Fjórar vegalengdir, eitthvað fyrir alla

Boðið verður upp á fjórar vegalengdir sem höfða til ólíkra hópa hlaupara:

  • AtWork Mega Trail – 18 km utanvegahlaup um Spákonufell.
  • 10 km götuhlaup.
  • 5 km götuhlaup.
  • Útbæjarhlaupið, tæplega 1 km skemmtihlaup fyrir börn og fjölskyldur.

Götuhlaupin eru FRÍ-vottuð og henta jafnt byrjendum sem lengra komnum hlaupurum, en AtWork Mega Trail er ætlað þeim sem vilja takast á við meira krefjandi utanvegahlaup í stórbrotinni náttúru. Utanvegahlaupið er um18 km með um 400 m hækkun, 18 ára (2008) aldurstakmark er í það. Öll börn og fullorðin eru hvött til að hlaupa Útbæjarhlaupið sem er 1km. Útbæjarhlaupið verður ekki ræst fyrr en eftir að keppendur eru komnir í mark úr götuhlaupunum og AtWork Megatrail svo að fullorðnir keppendur geti hlaupið með börnunum eftir á.

 

Myndir af hlaupunum; 18 km mega trail á Spákonufell. Síðan götukort af 5 og 10 km.

 

Viðburður sem styrkir samfélagið

Skipuleggjendur telja að viðburður sem þessi hafi jákvæð áhrif á heimabyggðina. Hann hvetur fólk á öllum aldri til hreyfingar, byggir áfram á því öfluga frjálsíþróttastarfi sem er á svæðinu og getur orðið innblástur fyrir fleiri til að taka upp heilbrigðan lífsstíl.

Utanvegahlaupið gefur þátttakendum jafnframt einstakt tækifæri til að upplifa stórbrotna náttúru Skagastrandar og Spákonufell, auk þess sem viðburðurinn styrkir samheldni samfélagsins með öflugu framlagi sjálfboðaliða og samstarfsaðila.

Sjálfboðaliðar, öll litlu og stóru verkin

Öflun sjálfboðaliða sem starfa við brautarvörslu, í markinu, á drykkjarstöð og í kaffi- og kökuhlaðborðinu eftir hlaup getur verið stórt verkefni sér í lagi yfir sumartímann. Sjálfboðaliðar koma nær eingöngu frá ungmennafélaginu Fram, kvenfélaginu Eldingu og björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd.

Skipuleggjendur munu síðan vera í samstarfi við sveitarfélagið Skagaströnd varðandi áhöld til merkinga á leiðinni.

  

Mynd tekin af Ólafi S. Benediktssyni

Að mörgu að hyggja

Mikil vinna liggur að baki undirbúningi hlaups sem þessa. Hlaupaleiðirnar þurfa að vera mældar og vottaðar samkvæmt reglum Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) til að tryggja réttar vegalengdir og gildan árangur.

Auk þess þarf að huga að tímatöku, skráningu, brautarmerkingum og öryggi þátttakenda. Tímataka.is sér um tímatöku og skráningu en Björgunarsveitin Strönd annast öryggisgæslu á lykilstöðum á leiðunum, þar á meðal við yfirferð yfir þjóðveg.

Kynningarmál

Hlaupið er kynnt gegnum skráningarsíðuna www.netskraning.is, á Hlaup.is www.hlaup.is og Hlaupadagskrá.is . Þetta eru helstu staðirnir sem hlauparar leita á en einnig viljum við ná til almennings með kynningum sem þessari og svo mun Feykir fjalla um hlaupið á sinni vefsíðu. Facebook síða hlaupins verður einnig sett upp.

Umgjörðin um hlaupið

Íþróttahúsið og sundlaugin munu skapa stóran sess í umgjörð hlaupsins sem og höfnin en rás- og endamark verður þar.  Atwork á Skagaströnd verður miðpunktur skipulagsins og munu númer verða afhent þar á laugardeginum og aðstoð veitt við nýskráningu.

Hvenær og hvar fer hlaupið fram / hvar skráir fólk sig?

Hlaupið verður haldið 19. júlí, og fer skráning fram hjá Netskráningu.is, auk  skráningar er að finna allar nauðsynlegar upplýsingar um hlaupið https://netskraning.is/skagastrandarhlaupid/

Hugmyndin er að hlaupið verði árlegt og byggi jafnt og þétt upp fjölda þeirra sem sækir Skagaströnd heim til að hlaupa.