Norðanstormur á Akureyri: Hugmyndir, fjármagn og framtíðarsýn mætast

Nýsköpunarráðstefnan Norðanstormur, sem haldin er af SSNE og SSNV
Nýsköpunarráðstefnan Norðanstormur, sem haldin er af SSNE og SSNV

Nýsköpunarráðstefnan Norðanstormur, sem haldin er af SSNE og SSNV, fer fram í Hofi á Akureyri 26. febrúar kl. 9:30–12:00, þar munu frumkvöðlar, fjárfestar og fyrirtæki hittast til að fræðast um helstu leiðir til fjármögnunar og vaxtar. Fyrst fara sjóðsstjórar og fjárfestar yfir fjármögnunarmöguleika en á eftir þeim stíga frumkvöðlar á svið og segja frá eigin vegferð – áskorunum, tækifærum og því sem kom verkefnum þeirra á legg.

Meðal fyrirlesara verða þau:

Amber Monroe (Ísponica) – Eigandi og stofnandi Ísponica, Amber sameinar fiskeldi og lóðrétta ræktun á sprettum og grænmeti. Hún mun fjalla um sína vegferð frá því að vera í kjallara á Hólum í gamalt frystihús á Hofsósi.


Fida Abu Libdeh (GeoSilica)
 – frumkvöðull sem byggði upp fyrirtæki sem nýtir jarðhitavatn til framleiðslu á náttúrulegum kísilsteinefnum. Hún mun fjalla stuttlega um nýsköpun, uppbyggingu og þróun GeoSilica.

 

Ingólfur Bragi Gunnarsson (MýSköpun) – framkvæmdastjóri örþörungafyrirtækisins MýSköpun, sem nýlega lauk 300 milljóna króna fjármögnun til uppbyggingar hátækniframleiðslu við Þeistareyki. Hann mun segja frá vexti fyrirtækisins og tækifærum á sviði líftækni.

 

Hrönn Greipsdóttir (Nýsköpunarsjóðurinn Kría) – forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu og reynslumikill stjórnandi í íslensku atvinnulífi. Hún fjallar um hlutverk sjóðsins í að styðja sprotafyrirtæki og hvetja einkafjárfesta til þátttöku.