Myrkurgæði – nýsköpun í ferðaþjónustu

Nýibær á Hólum í Hjaltadal, kannski dæmi um stað þar sem hægt er að nýta sér einfalda innviði (torfb…
Nýibær á Hólum í Hjaltadal, kannski dæmi um stað þar sem hægt er að nýta sér einfalda innviði (torfbæ) til að skapa sterkt sjónarhorn á mynd og þar með eftirminnilega upplifun (Kjartan Bollason, 2022)

Hvernig getur ferðaþjónustan nýtt sér myrkurgæði til að skapa nýja ferðavöru? Kjartan Bollason lektor og Magnea Lára Elínardóttir BA nemi og starfsmaður í Dark Sky Ecotourism Erasmus+ myrkurgæðaverkefni segja frá gerð og þróun fræðsluefnis fyrir fyrirtæki og samfélög um hvernig nýta megi myrkrið í ferðavörur sem fyrirtækin eru með í boði og skapa nýjar.

 

Myrkurgæðaferðaþjónusta einkennist af gestum sem ferðast til afskekktra, óupplýstra svæða á landi eða vatni, til að fylgjast með fyrirbærum á himnum, eins og stjörnum, reikistjörnum, tungli, geimþokum, stjörnuþyrpingum eða vetrarbrautum. Ferðamenn geta skoðað himininn með berum augum eða með hand- eða stjörnusjónaukum. Upplifun gesta af myrkum himni getur einnig blandast öðrum viðfangsefnum líkt og stjörnuljósmyndun eða að hlusta á sögumann (Dalgleish et al., 2022).

 

Sagt verður frá dæmum úr íslenskri ferðaþjónustu og fjallað um hvernig fyrirtæki geta skapað nýjar upplifanir. Við slíka vöruþróun er fylgt markmiðum um sjálfbæra ferðaþjónustu.

 

Fyrirlestraröð á vegum Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum: Fimmtudagurinn 24. nóvember 2022 kl. 11.15-12.00.

 

Fyrirlestur er haldinn á netinu, hér er tengill: https://eu01web.zoom.us/j/64024730179

 

Kjartan Bollason, lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum. kjartan@holar.is

og Magnea L. Elínardóttir, BA nemi við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum. mlara@holar.is