Mikill áhugi á Norðansprotanum – 40 umsóknir bárust frá öllu Norðurlandi

Alls bárust 40 umsóknir í nýsköpunarkeppnina Norðansprotann, víðsvegar að af Norðurlandi. Keppnin er nú haldin í þriðja sinn og vonir standa til að hún festi sig í sessi sem árlegur viðburður. Næsta skref hjá þátttakendum er að vinna einblöðung sem matsnefnd fer yfir, en að því loknu verða 5–8 verkefni valin áfram til að kynna hugmyndir sínar á lokaviðburði keppninnar.

Lokaviðburðurinn fer fram miðvikudaginn 22. apríl kl. 17:00 í Messanum í Drift á Akureyri og er opinn öllum áhugasömum. Þar stíga úrslitaverkefnin á svið, kynna hugmyndir sínar fyrir dómnefnd og gestum og keppa um titilinn Norðansprotinn.

Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á efnilegar hugmyndir á frumstigi og styðja við þróun nýsköpunar á Norðurlandi. Keppnin skapar vettvang fyrir frumkvöðla til að þróa hugmyndir sínar áfram, fá gagnlega endurgjöf og tengjast öflugu nýsköpunarsamfélagi landshlutanna.

„Það er virkilega ánægjulegt að sjá þann mikla kraft og metnað sem endurspeglast í umsóknum til Norðansprotans. Slíkur áhugi undirstrikar skýrt hversu öflug og lifandi nýsköpun á Norðurlandi er,“ segir Guðlaugur Skúlason, verkefnastjóri hjá SSNV.

Norðansprotinn er samstarfsverkefni SSNV, SSNE, Háskólans á Hólum, Háskólans á Akureyri, Drift EA og Hraðsins með veglegum stuðningi frá Landvættum fjárfestingasjóði.