Í sumarbyrjun lauk vinnu við skýrslu um menningarhús í landsbyggðunum þar sem menningarinnviðir utan höfuðborgarsvæðisins hafa verið kortlagðir. Í verkefninu var upplýsingum safnað um fjölbreytt menningarhús, menningarmiðstöðvar, safna- og sýningarrými, félagsheimili og aðra staði sem gegna mikilvægu hlutverki í menningar- og samfélagsstarfi landsbyggðanna.
Skýrslan var unnin á grundvelli aðgerðar B.09 – Stefnumótun og hlutverk menningarstofnana í Stefnumótandi Byggðaáætlun. Markmið aðgerðarinnar er að efla starfsemi menningarstofnana á landsbyggðinni, skilgreina hlutverk þeirra og leggja drög að stefnumörkun til framtíðar. Landshlutasamtökunum var falið að vinna verkið undir stjórn starfsfólks Austurbrúar.
Niðurstöðurnar sýna að víða um land er fjölbreytt húsnæði sem styður við listir, menningararf, félagsstarf, viðburðahald og skapandi greinar. Skýrslan veitir jafnframt heildstæða yfirsýn yfir þá aðstöðu sem stendur til boða utan höfuðborgarsvæðisins. Hugmyndir eru uppi um að nýta upplýsingarnar sem safnast hafa í verkefninu í sameiginlegan gagnagrunn yfir menningarhús og viðburðarými. Slíkur grunnur gæti aukið sýnileika þess sem í boði er, auðveldað skipulagningu viðburða og eflt samstarf milli landshluta.
Skýrsluna má finna hér.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550