Menningarauðlind ferðaþjónustunnar, ráðstefna í Hofi

Freyja Rut Emilsdóttir kynnti starfsemi 1238 Baráttan um Ísland.
Freyja Rut Emilsdóttir kynnti starfsemi 1238 Baráttan um Ísland.

Miðvikudaginn 14. maí stóð Rannsóknarsetur skapandi greina (RSG) í samstarfi við Rannsóknamiðstöð ferðamála fyrir ráðstefnu í Hofi.

Umfjöllunarefni ráðstefnunnar var menningarferðaþjónusta og mótun ferðamálastefnu til ársins 2030.

Á dagskrá voru dæmisögur af vel heppnaðri menningarferðaþjónustu, fræðileg erindi og hópavinna. Meðal erinda sem gestir ráðstefnunnar fengu að hlýða á voru fyrirlestrar um Galdrasýningu á Ströndum, Landnámssetrið í Borgarnesi, 1238 á Sauðárkróki, rekstur Hörpu, Bræðsluna og Þórbergssetur auk fræðilegra erinda tengd málefnum ráðstefnunnar. Öll erindin sem flutt voru á ráðstefnunni áttu það sammerkt að vera bæði áhugaverð og upplýsandi.

Ráðstefnugestir í Hofi unnu hópavinnu tengda fjórum lykilþáttum:

  • Samstarf og klasahugsun,
  • Markaðs og kynningarmál,
  • Vöruþróun og fjárfestingar og
  • Gagnasöfn og rannsóknaráætlun.

Vinna hópanna var að henni lokinni kynnt og urðu líflegar umræður um margt af því sem þar kom fram. Afurð hópavinnunnar mun nýtast við mótun ferðamálastefnu til ársins 2030.