Maturinn, jörðin og við

Dagana 7. og 8. apríl mun ráðstefnan Maturinn, jörðin og við vera haldin á Hótel Selfossi. Á ráðstefnunni, sem haldin er af félaginu Auður Norðursins í samstarfi við Byggðastofnun og Sambandi sunnlenskra sveitarfélaga, verður fjallað um tækifæri og áskoranir innan innlendrar matvælaframleiðslu.

Um er að ræða spennandi viðburð sem á erindi við alla þá sem hafa áhuga á eða starfa innan matvælaframleiðslu með einum eða öðrum hætti. Fjallað verður um málefnið út frá ýmsum hliðum, s.s. út frá umhverfis- og loftslagsmálum, nýsköpun, atvinnu- og byggðaþróun, heilsusjónarmiðum og fleiri áhrifaþáttum á neyslu og lífsstíl.  Nýjustu stefnur og straumar í matvælaframleiðslu verða tekin fyrir og von er á líflegum og skemmtilegum umræðum, sem geta skipt sköpum til framtíðar.

Hafir þú áhuga á matvælaframleiðslu, stefnumótun innan hennar, nýsköpun á landsbyggðinni, umhverfismálum, heilsu eða næringu er þetta viðburður sem þú mátt ekki láta fram hjá þér fara!

Skráning á ráðstefnuna er á www.tix.is. Dagskrána má sjá hér.