Málþing um velferðartækni

Heilbrigðis- og velferðartækniklasi Norðurlands (Veltek) mun halda málþing um nýjar nálganir í þjónustu við íbúa í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, föstudaginn 24. júní 2022. Flutt verða m.a. erindi um stafræn umskipti innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu í dreifðum byggðum, samvinnu á norðurslóðum og rannsóknir á þjónustulausnum kynntar. Í tengslum við málþingið munu fyrirtæki kynna þjónustulausnir sínar. Dagskrá þingsins er aðgengileg hér. 

Aðgangur að þinginu er öllum opinn en óskað er skráningar.