Málþing um svæðisbundinn stuðning í íslenskum landbúnaði

Í tilefni af útgáfu nýrrar skýrslu verður haldið rafrænt málþing miðvikudaginn 4. júní kl. 09:00–10:30 undir yfirskriftinni Svæðisbundinn stuðningur í íslenskum landbúnaði.

Skýrslan, sem ber sama heiti og málþingið, er afrakstur rannsóknarverkefnis unnið fyrir Byggðarannsóknasjóð af Jóhönnu Gísladóttur, Torfa Jóhannessyni og Tómasi H. Alexander. Hún verður gefin út sem rit Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) og kemur út 3. júní.

Á málþinginu verður athyglinni beint að byggðaþróun í dreifbýli og þýðingar miklu hlutverki landbúnaðar í því samhengi. Fyrri hluti dagskrár fer fram á ensku með erindum sérfræðinga frá Norðurlöndunum, en í seinni hlutanum verður efni skýrslunnar kynnt á íslensku.

Dagskrá:

  • Rural and Regional Development in the Nordic Countries – Karen Refsgaard, forstjóri LinkNordic

  • Regional Support to Agriculture in Norway – Arne Bardalen, Norwegian Institute of Bioeconomy Research

  • Svæðisbundinn stuðningur í íslenskum landbúnaði – Jóhanna Gísladóttir, lektor við LBHÍ, og Torfi Jóhannesson, Nordic Insights

Málþingið fer fram á Teams og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis og hvatt er til þátttöku allra sem hafa áhuga á landbúnaði, byggðaþróun og stefnumótun á landsbyggðinni.

Verkefnið er styrkt af Byggðarannsóknasjóði.

Hlekkur á málþingið er hér